Íþróttastjóri óskast til starfa

Golfklúbburinn Leynir óskar eftir íþróttastjóra og golfkennara til starfa

Íþróttastjóri gengir lykilhlutverki í starfi klúbbsins og hefur umjón með skipulagi og þjálfun kylfinga í klúbbnum.

Starfssvið
– Stefnumótun og markmiðasetning varðandi golfþjálfun.
– Ábyrgð á skipulagi og framkvæmd þjálfunar barna og unglinga.
– Ábyrgð á skipulagi og framkvæmd þjálfunar afrekskylfinga.
– Ábyrgð á þjónustu við almenna kylfinga á sviði þjálfunar.
– Upplýsingagjöf og samstarf við stjórn og nefndir klúbbsins.

Menntunar- og hæfniskröfur
– Viðurkennt PGA golfkennaranám, PGA nemi, eða annað sambærilegt nám.
– Reynsla af sambærilegu starfi kostur.
– Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
– Geta til að tjá sig í ræðu og riti.
– Jákvæðni, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.

Umsóknum skal fylgja greinargóð ferilskrá umsækjenda. Senda skal umsóknir á netfangið leynir@leynir.is, merkt golfkennari fyrir 28. febrúar 2017. Nánari upplýsingar um starfið veitir framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis í síma 896-2711 og á netfanginu gs@leynir.is

Björn Viktor sigraði Vetrarmót # 5

Vetrarmót # 5 (9 holu punktakeppni með forgjöf) var haldið á Garðavelli laugardaginn 18. febrúar með þátttöku 56 kylfinga. Þetta golfmót fer án efa í sögubækurnar á Garðavelli en elstu félagsmenn muna ekki eftir öðru eins og að það sé spilað inn á sumarflatir á þessum árstíma og völlurinn í þessu góða ástandi sem hann er.

Helstu úrslit voru eftirfarandi:
1. Björn Viktor Viktorsson, 20 punktar (betri á síðustu 6 holum)
2. Dean E. Martin, 20 punktar
3. Karl Ívar Alfreðsson, 19 punktar (betri á síðustu 6 holum)

Nándarmælingar á 14. Holu og 18. Holu:
14.hola, Kristinn Hjartarson, 6.77m
18.hola, Lárus Hjaltested, 2.58m

Íslandsbanki gaf verðlaun á 14.holu og 66°Norður gáfu verðlaun á 18.holu og eru þeim færðar bestu þakkir fyrir stuðninginn.

Golfklúbburinn Leynir þakkar kylfingum fyrir þátttökuna og óskar vinningshöfum til hamingju með verðlaunin. Vinningshafar geta sótt verðlaun á skrifstofu GL.

Vetrarmót # 5 – innanfélagsmót laugardaginn 18. febrúar – skráning á golf.is

Laugardaginn 18. febrúar verður haldið 9 holu innanfélagsmót (holur 10-18) þar sem ræst er út af öllum teigum samtímis kl. 10:00 ef næg þátttaka fæst en lágmarksfjöldi er 15 kylfingar. Spilað er af sumarflötum og teigum í þetta skiptið en veðurfar s.l. vikur er afar sérstakt og því eru kylfingar hvattir til að nýta svona tækifæri sem gefst nú um miðjan febrúar.

Spiluð verður punktakeppni með forgjöf þar sem hámarksforgjöf karla er 28 og kvenna 36. Verðlaun fyrir 1. sæti og nándarverðlaun á 18. holu. Fjölmennum sem flest og tökum þátt í vetrarmótum GL meðan veður og aðstæður leyfa.

Mótsgjald er 1000 kr. og fer skráning fram á golf.is

Garðavöllur á Akranesi fer ekki varhluta af mildu veðurfari vetrarins

Garðavöllur á Akranesi fer ekki varhluta af mildu veðurfari vetrarins.
Að sögn Brynjars Sæmundssonar vallarstjóra á Garðavelli er ekkert frost í jörðu og ástand vallarins eins og að vori. Nokkrar sumarflatir voru slegnar miðvikudaginn 15. febrúar, og hefur slíkt ekki gerst áður.
“Vissulega er gróðurinn viðkvæmur og vel má búast við frosti og vetrarveðri áður en hið eiginlega vor gengur í garð. En þar sem sól hækkar hratt á lofti þá er ástæða til að vera bjartsýnn á snemmbúna opnun Garðavallar þetta golftímabilið” að sögn Brynjars.

Einar Lyng hættir sem íþróttastjóri GL

Einar Lyng íþróttastjóri Golfklúbbsins Leynis hefur að eigin ósk óskað eftir að láta af störfum og hefur stjórn GL orðið við beiðni hans.

Einar Lyng mun vinna við golfkennslu hjá GL út mars n.k. en hann hefur ráðið sig til Golfklúbbs Mosfellsbæjar og mun sinna golfkennslu þar.

Stjórn GL vill þakka Einari Lyng fyrir góð störf og gott samstarf undanfarin ár og óskar honum um leið velfarnaðar í komandi framtíð.

Vetrarmótaröð GL – úrslitakeppni að hefjast

Úrslitakeppni í vetrarmótaröðinni er fram undan og verður leikið skv. eftirfarandi dagsetningum:

– Mánudaginn 6. febrúar leika eiga annarsvegar lið Guðmundar Hr. og hinsvegar lið Ægis um 1. og 2. sætið.
– Fimmtudaginn 9. febrúar leika annarsvegar lið Bjarna Þórs og hinsvegar lið Þrastar um 5. og 6. sætið.
– Mánudaginn 13. febrúar leika annarsvegar lið Alfreðs Þórs og hinsvegar lið Viktors Elvars um 3. og 4. sætið.

Hin glæsilegi völlur Kapalua Village (Hawai) verður spilaður skv. breyttu leikjaplani og eru fyrirliðar liðanna beðnir að tryggja að lið sín mæti klár til leiks kl. 20:00.

Staðan eftir riðlakeppni er eftirfarandi:

A riðill
Lið Guðmundar Hr., 1½ vinningur
Lið Alfreðs Þórs, 1 vinningur
Lið Bjarna Þórs, ½ vinningur

B riðill
Lið Ægis, 2 vinningar
Lið Viktors Elvars, 1 vinningur
Lið Þrastar Vilhj., 0 vinningur

Skrifstofa lokuð 3.feb-10.feb / skráning í golfhermi

Skrifstofa GL verður lokuð frá föstudeginum 3. febrúar til og með föstudeginum 10. febrúar 2017. Vinsamlega sendið fyrirspurnir eða annað tengt starfi klúbbsins á netfangið leynir@leynir.is og pósti verður svarað við fyrsta tækifæri.

Skráning og bókanir í golfhermi þessa daga mun Bjarni Sveinsson sjá um og er félagsmönnum bent á að hringja í síma 897-5165 eða senda póst á netfangið bjarnisv@aknet.is

Golfferð til Spánar í apríl – frábært verð

VITAgolf býður félagsmönnum GL nú spennandi vikuferð til El Rompido á Spáni þann 1. apríl til 8. apríl nk. á sérlega góðu verði með öllu inniföldu*

Verð á mann:

Tveir í íbúð m/1 svefnh. kr. 159,500.-

Einn í íbúð m/1 svefnh. kr. 177,500.-

Innifalið*:

Beint leiguflug með Icelandair

Flugvallaskattar

Flutningur golfsetts (hámark 15 kg) og farangurs (hámark 20 kg)

Akstur milli flugvallar og hótels

Íbúðagisting

Morgun-hádegis-og kvöldverðarhlaðborð, ótakmarkað af innlendum drykkjum

Ótakmarkað golf með golfkerru alla daga (háð brottfarar-og komutíma)

Fararstjórn

Ath. Golfbíll er ekki innifalinn. Hægt er að bóka hann sem aukakost og kostar hann EUR 33 á dag og greiðist úti.

Hægt er að nota 12,500.-vildarpunkta upp í ferðakostnað sem gera kr. 10,000.-

Hér má bóka ferðina :

https://bokanir.vita.is/vita_golf/booking3.do

Vetrarmótaröðin fer vel af stað – staðan eftir 1. umferð

Mótaröðin hefur farið vel af stað og frábært skor og punkar litið dagsins ljós í mörgum tilfellum.

Mánudaginn 23. janúar byrjar önnur umferð og leik eiga annarsvegar lið Alfreðs Þórs og hinsvegar lið Bjarna Þórs. Á fimmtudaginn 26. janúar spila annarsvegar lið Ægis og hinsvegar lið Þrastar. Hin glæsilegi völlur Belfry á Englandi verður spilaður skv. leikjaplani og eru fyrirliðar liðanna beðnir að tryggja að lið sín mæti klár til leiks kl. 20:00. Mánudaginn 23. janúar sitja hjá lið Guðmundur Hr. og fimmtudaginn 26. janúar sitja hjá lið Viktors Elvars.

Staðan eftir fyrstu umferð er eftirfarandi:

A riðill
Lið Alfreðs Þórs, 0 vinningar en liðið sat hjá í 1. umferð
Lið Guðmundar Hr., ½ vinningur
Lið Bjarna Þórs, ½ vinningur

B riðill
Lið Viktors Elvars, 0 vinningur
Lið Ægis, 1 vinningur
Lið Þrastar Vilhj., 0 vinningar en liðið sat hjá í 1. umferð

Golfnámskeið í inniaðstöðu GL – skráning hafinn

Eins og s.l. vetur verður Einar Lyng PGA golfkennari og íþróttastjóri GL með golfnámskeið og vetrarkennslu í inniaðstöðu GL. Kennt verður á sunnudögum og ef þú ágæti félagsmaður ætlar að undirbúa þig fyrir sumarið þá veitir Einar Lyng nánari upplýsingar í síma 771-2410 og á netfanginu einarlyng71@gmail.com

Skráning er hafinn og stendur til og með 1. febrúar en gert er ráð fyrir að námskeið hefjist sunnudaginn 5. febrúar 2017.