Tilgangur félagsins er að kenna og iðka ólympíska hnefaleika og gæta hagsmuna félagsmanna. Félagið leggur áherslu á að félagsmenn keppi eftir þeim reglum sem gilda hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands og Alþjóða hnefaleikasambandinu AIBA um ólympíska hnefaleika hverju sinni.
Keppnisbúningur félagsins: Svartir og gulir hlýrabolir og gular stuttbuxur. Bæði hlýrablolirnir og stuttbuxurnar skulu merkt Hnefaleikafélagi Akraness og ÍA.
Æfingabúningur félagsins: Svartir með gulum merkingum Hnefaleikafélags Akraness, íA og merki styrktaraðila hverju sinni.
Æfingar félagsins fara fram í aðstöðu þess í kjallara íþróttahússins við Vesturgötu