ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Fræðslu- og félagsmálastefna ÍA

Eitt af hlutverkum ÍA er að hafa forystu um fræðslu og sameiginleg félagsmál íþróttafélaganna á Akranesi.

Fræðslustefna:

  • Að veita öfluga upplýsingagjöf og fræðslu til aðildarfélaganna með því að bjóða uppá regluleg námskeið, fyrirlestra og fræðslu sem nýtast megi aðildarfélögum í íþróttastarfi þeirra.
  • Að hvetja aðildarfélög ÍA til að efla þekkingu og meðvitund iðkenda, þjálfara og annars starfsfólks á siðareglum og hegðunarviðmiðum ÍA.
  • Að vinna markvisst að því að kynna þær íþróttagreinar sem eru í boði hjá ÍA og skapa tækifæri og svigrúm til þess að börn og unglingar geti stundað íþróttir í samræmi við eigin þarfir, getu og áhuga.
  • Að hvetja aðildarfélög til samstarfs við skóla og frístund til að gefa börnum fjölbreytileika í frístunda- og íþróttastarfi á dagvinnutíma.
  • Að hvetja til almennrar þátttöku ungs fólks í íþróttastarfi aðildarfélaganna.
  • Að hjá ÍA starfi menntaðir og hæfir þjálfarar.
  • Að hvetja öll aðildarfélög til að senda þjálfara sína í Þjálfaramenntun ÍSÍ og sérsambanda.
  • Að hvetja öll aðildarfélög til að verða Fyrirmyndarfélög ÍSÍ.

Félagsmálastefna:

  • Að efla félagshæfni iðkenda og félagsmanna innan ÍA og virkja þá sem þátttakendur í íþróttahreyfingunni.
  • Að bjóða uppá faglegt íþróttastarf sem innifelur heilbrigt og gott félagslegt uppeldi barna og unglinga.
  • Að hvetja til jákvæðra samskipta og fræðslu um verndandi þætti velferðar sem og áhættuþætti innan aðildarfélaganna.
  • Að skapa tækifæri til að leika og starfa í fjölskylduvænni og heilbrigðri íþróttahreyfingu þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl, vellíðan og sterka
    sjálfsmynd.
  • Að hlúa vel að umhverfi barna og unglinga/iðkenda þannig að þau/þeir búi við öruggt og uppbyggilegt umhverfi þar sem áhersla er á félagsleg samskipti og félagslega færni
    til jafns við íþróttaæfingar og keppnir.
  • Að taka sérstaklega vel á móti nýliðum og fræða iðkendur um heilbrigðan
    fordómalausan lífsstíl.
  • Að stuðla að skipulögðu félagsstarfi og samveru utan íþróttaæfinga
Edit Content
Edit Content
Edit Content