Áttu eftir að greiða félagsgjaldið 2017 ?

Nú þegar styttist í vorið og að Garðavöllur opni vill stjórn GL minna félagsmenn og aðra áhugasama um félagsaðild að greiða félagsgjaldið fyrir árið 2017.

Hægt er að greiða félagsgjaldið á heimasíðu IA, sjá www.ia.is (iðkendavefur IA – Skráning í Nóra -). Ath: í Nóra er valmöguleiki á greiðslum og geta iðkendur greitt með greiðsluseðli sendum í heimabanka.

Eins er hægt að greiða inn á reikning GL k.t. 580169-6869 og bankanr. 0186-26-601 (vinsamlegast látið fylgja með í skýringu kennitölu sé þessi leið notuð).

Þeim félagsmönnum sem vilja notfæra sér aðra greiðslumöguleika er bent á að hafa samband við framkvæmdastjóra GL í síma 431-2711/896-2711 eða með tölvupósti á leynir@leynir.is

Jafntefli gegn KR í Höllinni

Meistaraflokkur kvenna gerði fyrr í dag markalaust jafntefli við KR í þriðja leik sínum í Lengjubikarnum. Góð barátta var oft

Lengjubikar kvenna: ÍA – KR

Laugardaginn 18. mars kl. 13:00 taka stelpurnar í meistaraflokki kvenna á móti KR í þriðja leik sínum í Lengjubikarnum. Eins

Mótaskrá GL sumarið 2017

Mótaskrá GL sumarið 2017 er kominn á vefsíðuna www.golf.is Að venju er mikið af mótum í boði fyrir félagsmenn og aðra gesti Garðavallar og þá bæði innanfélagsmót og opin mót.

Nokkrar dagsetningar móta sem vert er að minnast á:
– Meistaramót GL börn, unglingar og fullorðnir, 3. júlí til 8. júlí.
– Íslandsmót unglinga í höggleik, 13. júlí til 16. júlí.
– Íslandsmót golfklúbba, 1. deild kvenna, 11. ágúst til 13. ágúst.

Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér mótaskrá sumarsins og og ef þeir hafa einhverjar spurningar að hafa þá samband við skrifstofu GL.

Sumarstörf í boði 2017

Golfklúbburinn Leynir óskar eftir starfsfólki sumarið 2017 frá maí til og með ágúst.

Okkur vantar flokkstjóra sem hefur náð 25 ára aldri og mun hafa umsjón með umhirðu og slætti á golfvellinum. Flokkstjóri mun vinna náið með framkvæmdastjóra og vallarstjóra við skipulag og framkvæmd á umhirðu og slætti.

Okkur vantar starfsmenn sem hafa náð 17 ára aldri í umhirðu og slátt á golfvellinum. Um er að ræða tækja- og vélavinnu þar sem mikil áhersla er lögð á frumkvæði, stundvísi, samskipta- og samstarfshæfni.

Okkur vantar starfsmann sem hefur náð 20 ára aldri í afgreiðslu og aðstoð á skrifstofu. Reynsla af þjónustustörfum og golfíþróttinni er æskileg ásamt almennri tölvukunnáttu. Mikil áhersla er lögð á þjónustulund, frumkvæði, stundvísi, samskipta- og samstarfshæfni.

Senda skal umsóknir á netfangið leynir@leynir.is fyrir 16. mars 2017.

Frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 896-2711 eða á netfanginu gs@leynir.is

Samningur undirritaður um rekstur golfskálans sumarið 2017

Golfklúbburinn Leynir skrifaði undir samning fimmtudaginn 2. mars við Steinþór Árnason um rekstur golfskálans og veitingasölu sumarið 2017.

Steinþór hefur víðtæka reynslu af rekstri kaffihúsa, veitingastaða og hótela bæði á Íslandi og erlendis sem án efa mun nýtast til að gera góðan golfskála enn betri.

Golfskálinn og veitingareksturinn mun fá rekstrarheitið 19 holan sem á vel við þvi hvað er betra en að koma við í skálanum og fá sér drykki eða annað matarkyns fyrir eða að loknum góðum 18 holu golfhring.

Stjórn Golfklúbbsins Leynis óskar Steinþóri gæfu og velfarnaðar með reksturinn.

Ef kylfingar og aðrir gestir Garðavallar hafa fyrirspurnir um veitingar í sumar eða annað sem snýr að golfskálanum má senda fyrirspurnir á netfangið 19holanakranesi@gmail.com og einnig leynir@leynir.is

Mynd: Steinþór Árnason og Guðmundur Sigvaldason framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis að lokinni undirskrift samnings.

Ægir og félagar sigruðu vetrarmótaröð GL í golfhermi

Vetrarmótaröð GL var haldinn í golfhermi nú í janúar og febrúar. Mótaröðin tókst vel og var spilað í tveimur riðlum með þátttöku 6 liða. Keppnisfyrirkomulagið var betri boltinn þar sem tveir leikmenn frá hverju liði spiluðu. Úrslitakeppnin var ekki síður skemmtileg þar sem liðin komu ákveðin til leiks og spiluðu um sæti og má sjá úrslit hér neðar.

Mótið þótti takast vel og má vænta þess að svona mót verði haldið aftur að ári og þá vonandi með fleiri liðum.

Úrslit urðu eftirfarandi:

1.sæti, Ægir Jóhanns., Magnús Karlsson og Þórður Guðlaugsson.
2.sæti, Guðm.Hreiðarsson, Einar Jónsson og Þórður Elíasson.
3.sæti, Viktor Elvar Viktorsson og Björn Viktor Viktorsson.

Golfklúbburinn leynir þakkar keppendum fyrir þátttökuna og óskar vinningshöfum til hamingju.