Vetrarmótaröðin að hefjast – riðlar og leikdagar

Vetrarmótaröð GL hefst mánudaginn 16. janúar og verður A riðill spilaður á mánudögum og B riðill á fimmtudögum.

A riðill
1) Guðm.Hreiðars. / Einar Jóns. / Þórður El.
2) Bjarni Þór / Eiríkur Karls / Bjarni Guðm.
3) Alfreð Þór / Guðm.Sigv. / Halldór Jóns.

B riðill
1) Viktor Elvar / Björn Viktor
2) Ægir J. / Magnús M. Karls. / Þórður Guðl.
3) Þröstur V. / Búi G. / Lárus Hj.

Leikdagar í riðlakeppni
Janúar/febrúar: 16. jan. (1-2), 19.jan. (1-2), 23. jan. (2-3), 26. jan.(2-3), 30. jan. (1-3) og 2. feb. (1-3).

Áætlaðir leikdagar í úrslitakeppni
Febrúar: 6. feb, 9. feb, 13. feb. og 16. feb.

Valdís Þóra íþróttamaður Akraness – Til hamingju

Kjör íþróttamanns Akraness 2016 fór fram í kvöld 6. janúar í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur úr röðum Golfklúbbsins Leynis var kjörin íþróttamaður Akraness og nú í fimmta skipti. Í öðru sæti varð Ágúst Júlíusson frá Sundfélagi Akraness og Einar Örn Guðnason frá Kraflyftingafélagi Akraness í þriðja sæti.

Golfklúbburinn Leynir óskar Valdís Þóru til hamingju með kjörið og sendir bestu kveðjur til allra verðlaunahafa í kjöri íþróttamanns Akraness.

Vetrarmótaröð GL í golfhermi – skráning stendur yfir

Skráning er hafinn í vetrarmótaröð GL sem fram fer í golfhermi í inniaðstöðu GL og er áætlað að fyrsti leikur verði 16. janúar n.k. Upplýsingar og frekari skráning er á netfanginu leynir@leynir.is eða á skrifstofu GL í síma 431-2711.

Spilaður verður “Betri boltinn” með forgjöf þar sem tveir eru saman í liði. Áætlað er að spila í tveim riðlum ef þátttaka næst og að lokinni riðlakeppni verður spiluð úrslitakeppni en spilað verður á mánudags og fimmtudagskvöldum frá kl. 20 – 23.

Félagsmenn GL eru hvattir til að taka þátt í vetrarmótaröðinni og skrá sig við fyrsta tækifæri.

Greiðsla árgjalda fyrir 2017 hafinn

Á aðalfundi GL þann 6. desember s.l. voru samþykkt árgjöld fyrir árið 2017 og verða þau með eftirfarandi hætti:

– Fullorðnir 30 – 66 ára 80.000 kr.*
– Fullorðnir 22 – 29 ára 56.000 kr.*
– Makagjald 56.000 kr.*
– 67 ára og eldri 56.000 kr.*
– 16 – 21 árs 27.000 kr. **
– Börn og unglingar 15 ára og yngri 16.000 kr. **
– Nýliðagjald 40.000 kr. ***
– Fjaraðild 56.000 kr.****

Greiðsla árgjalda

Skráning iðkenda og greiðsla árgjalda fer fram á heimasíðu IA, sjá www.ia.is (iðkendavefur IA – Skráning í Nóra -). Ath: í Nóra er valmöguleiki á greiðslum og geta iðkendur greitt með greiðsluseðli sendum í heimabanka.

Eins er hægt að greiða inn á reikning GL k.t. 580169-6869 og bankanr. 0186-26-601 (vinsamlegast látið fylgja með í skýringu kennitölu sé þessi leið notuð).

Þeim félagsmönnum sem vilja notfæra sér aðra greiðslumöguleika er bent á að hafa samband við framkvæmdastjóra GL í síma 896-2711 eða með tölvupósti á leynir@leynir.is

Skýringar vegna árgjalda

*Veittur er 5% staðgreiðslu afsláttur af fullu árgjaldi sé greitt fyrir eindaga sem er 1. febrúar 2017. Afsláttargjald er 76.000 kr.

*Veittur er afsláttur af makagjaldi, 67 ára og eldri, 22-29 ára, fjaraðild og nýliðagjaldi ef greitt er fyrir eindaga 1. febrúar 2017. Afsláttargjald er 53.200 kr.

**Allir félagsmenn og iðkendur í barna og unglingastarfi eru með fulla aðild að Garðavelli og heimild til þátttöku í almennu æfingastarfi.

***Almennt er nýliðagjald fyrir 22 ára og eldri sem hafa ekki áður verið félagsmenn í GL eða ekki greitt árgjöld undanfarin 5 ár (2016, 2015, 2014, 2013, 2012). Nýliðagjald er greitt fyrsta árið sem félagsmaður er í klúbbnum og síðan greiða félagsmenn fullt gjald á öðru ári. Innifalið í nýliðagjaldi er 3 klst námskeið þar sem farið er yfir grunnatriði og helstu reglur í golfi ásamt 5 boltafötum á æfingasvæðinu Teigum. Ath: Vinsamlega hafið samband við framkvæmdastjóra GL vegna aðildar að GL.

Í nýliðagjaldi er full aðild að Garðavelli.

****Fjaraðild er fyrir þá sem búa utan Akranes og nærsveita þ.e. utan póstnúmera 300 og 301. Innifalið í fjaraðildargjaldi eru 5 boltafötur á æfingarsvæðinu Teigum. Ath: Vinsamlega hafið samband við framkvæmdastjóra GL vegna aðildar að GL.

Námsmenn sem hyggjast greiða námsmannagjald eru vinsamlega beðnir að hafa samband við framkvæmdastjóra GL vegna aðildar að GL.

Systkinaafsláttur er 10% hjá GL og reiknast af hverju greiddu gjaldi.

Gleðilega hátíð

Golfklúbburinn Leynir sendir bestu óskir um gleðilega hátíð og heillaríkt komandi ár.

Skrifstofa klúbbsins verður lokuð frá 23. desember 2016 til og með 3. janúar 2017.