Valdís Þóra verður fyrsti varamaður á Opna bandaríska mótinu
Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir (GL) komst í bráðbana um sæti á Opna bandaríska mótinu í gær mánudaginn 5. júní. Valdís Þór var grátlega nálægt því að öðlast þátttökurétt á einu af risamótunum í golfi eftir að hafa tekið þátt í 36 holu úrtökumóti sem fór fram hjá Buckinghamshire golfklúbbnum í Englandi.
Opna bandaríska mótið er eitt fimm risamóta í kvennagolfinu en það fer næst fram dagana 10.-16. júlí á þessu ári. Brittany Lang hefur titil að verja en allir bestu kvenkylfingar heims verða meðal keppenda.
Opna CANDINO SWISS WATCH: Hannes og Emil sigruðu
Opna CANDINO SWISS WATCH í boði Guðmundar B. Hannah úra- og skartgripaverslunar á Akranesi var haldið á Garðavelli mánudaginn 5. Júní. Mótið tókst í alla staði vel með frábæru veðri, góðum vallaraðstæðum og mjög góðri þátttöku um 100 kylfinga.
Helstu úrslit voru eftirfarandi:
Punktakeppni með forgjöf
1. Emil Kristmann Sævarsson GL, 39 punktar (betri á seinni níu)
2. Jón Vilhelm Ákason GL, 39 punktar
3. Hróðmar Halldórsson GL, 38 punktar
Höggleikur án forgjafar (besta skor)
1. Hannes Marinó Ellertsson GL, 71 högg
Nándarmælingar
8. hola (konur), María B. Sveinsdóttir GL, 3.75m
18. hola (karlar), Davíð Búason GL, 1.02m
Golfklúbburinn Leynir óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar kylfingum fyrir góða þátttöku og stuðning við starf klúbbsins sem og Guðmundi B.Hannah fyrir góðan stuðning við mótið. Vinningshafar geta sótt vinninga á skrifstofu GL.
Skagamenn töpuðu gegn Breiðablik í fjörugum leik
Meistaraflokkur karla mætti Breiðablik í sjötta leik Íslandsmótsins sem fram fór við ágætar aðstæður á Norðurálsvelli. Blikar byrjuðu leikinn af
Vel heppnað stelpugolf á Garðavelli
Stelpugolfdagurinn var haldinn á Garðavelli mánudaginn 5. júní með glæsibrag þar sem ömmur, mömmur, dætur, frænkur og vinkonur mættu og fengu grunnkennslu í öllum þáttum golfsins.
Hulda Birna Baldursdóttir PGA golfkennari ásamt góðum liðsauka golf leiðbeinenda GL og kvennanefnd GL gerðu daginn skemmtilegan og áhugasaman og má ætla að þetta verði árviss viðburður hér eftir á Garðavelli.
Margar stelpur á öllum aldri skiluðu inn skorkorti í Happdrætti stelpugolfsins og voru eftirfarandi stelpur dregnar út:
Golfhringur fyrir tvo hjá Golfklúbb Akureyrar (GA), Kolbrún Kjartansdóttir
Golfhringur fyrir tvo hjá Golfklúbb Grindavíkur (GG), Helga Gísladóttir
Golfhringur fyrir tvo hjá Golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar (GKG), Eyja Þóra Guðjónsdóttir
Golfhringur fyrir tvo hjá Golfklúbb Selfoss (GOS), Arna Magnúsdóttir
Golfhringur fyrir tvo hjá Golfklúbbnum Leyni (GL), Klara B. Gunnarsdóttir

ÍA klifrarar skelltu sér norður í land yfir helgina og klipu í norðlenskt berg, í Munkaþverárgili rétt fyrir utan Akureyri. Brimrún Eir Óðinsdóttir leiddi “Róló” (5.6) og “Sófus” (5.8) og tók nokkrar vinnuferðir í “Undir brúnni” (5.9), “Bláu ullinni” (5.9) og “Englaryki (5.9) og verða þær settar á To-do listann fyrir næstu ferð. Sylvia Þórðardóttir […]
Opna Landsbankamótið 2017: Heimir og Ragnar sigruðu
Opna Landsbankamótið fór fram laugardaginn 3. júní á Garðavelli. Rúmlega 70 kylfingar tóku þátt við góðar aðstæður þar sem gott veður réð ríkjum og frábær völlur mætti kylfingum.
Helstu úrslit voru eftirfarandi:
1.sæti, Frændurnir, Heimir Þór Ásgeirsson og Ragnar Smári Guðmundsson, 60 högg nettó
2.sæti, Augasteinn föður síns, Sigurður Elvar Þórólfsson og Þórólfur Ævar Sigurðsson, 62 högg nettó (betri á seinni níu)
3.sæti, Pútt master, Sigursveinn P Hjaltalín og Rúnar Örn Jónsson, 62 högg nettó
Nándarverðlaun
3.hola, Ricardo Mario Villalobos, 62cm
8.hola, Aðalsteinn Huldarsson, 2.52m
14.hola, Ragnar Þór Gunnarsson, 5.62m
18.hola, Arnar Dór Hlynsson, 2.55m
Golfklúbburinn Leynir óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar kylfingum fyrir góða þátttöku og stuðning við barna og unglingastarf klúbbsins sem og Landsbankanum við stuðning við mótið. Foreldrar sem veittu aðstoð við mótið fá sömuleiðis kærar þakkir fyrir hjálpina. Vinningshafar geta sótt vinninga á skrifstofu GL.
Frekari upplýsingar um úrslit má sjá hér
Sigrún Eva og Katrín María valdar á U16 ára æfingar
Þann 16. og 17. júní næstkomandi verða haldnar úrtaksæfingar hjá U16 ára landsliði kvenna sem undirbýr nú þátttöku á Norðurlandamóti
Næsta vika hjá yngri flokkunum
Það eru hvorki meira né minna en 20 leikir á dagskrá yngri flokkanna næstu vikuna. B-lið ÍA/Kára í 2. flokki
ÍA tapaði gegn Keflavík í kaflaskiptum leik
Meistaraflokkur kvenna mætti Keflavík í fjórðu umferð Íslandsmótsins sem fram fór við frekar erfiðar aðstæður á Norðurálsvelli. Bæði lið glímdu
Tryggvi og Albert með U21 til Englands
Rétt í þessu var kynntur leikmannahópur U21 árs landsliðsins sem sækir Englendinga heim þann 10. júní næstkomandi. Um er að