Meistaraflokkur kvenna gerði fyrr í dag markalaust jafntefli við KR í þriðja leik sínum í Lengjubikarnum.
Góð barátta var oft á tíðum í leiknum og nokkuð jafnræði með liðunum en Skagastúlkur fengu þó betri marktækifæri.
Þessi úrslit þýða að ÍA situr áfram á toppnum eftir leiki helgarinnar, með 7 stig eftir þrjá leiki.