Góður árangur GL krakka á fyrstu GSÍ mótum sumarsins

Íslandsbankamótaröðin og Áskorendamótaröð Íslandsbanka hófust um helgina en mótin eru hluti af unglingamótaröðum GSÍ.

Leynir átti 14 fulltrúa á mótunum tveimur, 9 tóku þátt á Áskorendamótaröðinni sem leikin var á Selfossi og 5 léku á Íslandsbankamótaröðinni sem leikin var á Hellu. Á Selfossi gerði Bára Valdís Ármansdóttir sér lítið fyrir og vann Stúlknaflokkinn 15-18 ára, Klara Kristvinsdóttir varð í 3. sæti í sama flokki.

Í piltaflokki 14 ára og yngri gerðu okkar strákar einnig góða hluti. Gabríel Þór Þórðarson varð í 2. sæti og þeir Þorgeir Örn Bjarkason og Ingimar Elfar Ágústsson urðu jafnir í 3. sæti.

Auk þessara 5 verðlaunahafa tóku Bjarki Brynjarsson, Daði Már Alfreðsson, Kári Kristvinsson og Kristín Vala Jónasdóttir þátt á Selfossi og stóðu þau sig öll með stakri prýði.

Á Íslandsbankamótaröðinni á Hellu átti Leynir 5 keppendur. Fjórir léku í flokki 15-16 ára pilta og 1 lék í flokki 14 ára og yngri drengja. Aðstæðu voru krefjandi á Hellu sér í lagi fyrripart sunnudags þegar flestir okkar stráka voru við leik. Veðrið batnaði mikið þegar leið á daginn og það nýtti Björn Viktor Viktorsson sér og lék gott golf sem skilaði honum í hús jafn í 1. sæti. Eftir bráðabana um 1. sætið varð 2. sætið þó hlutskiptið.

Frábær árangur og þátttaka hjá krökkunum okkar. Áfram Leynir og ÍA!

Pepsideild karla: ÍBV – ÍA

Það er líka leikdagur hjá strákunum okkar í meistaraflokki karla þar sem þeir freista þess að sækja stig til ÍBV

Vel heppnað góðgerðar golfmót Team Rynkeby á Íslandi: Reynir og Dean sigruðu

Góðgerðar golfmót Team Rynkeby á Íslandi var haldið á Garðavelli laugardaginn 27. maí 2017 með þátttöku um 70 kylfinga.

Mótið tókst vel og veðrið gott eins og allar vallaraðstæður sömuleiðis. Mótið var haldið af Team Rynkeby Ísland í samstarfi við Golfklúbbinn Leyni og rennur allur ágóði til styrktarfélags krabbameinsjúkra barna.

Helstu úrslit voru eftirfarandi:
Punktakeppni með forgjöf 0-10,1
1. Reynir Sigurbjörnsson GL, 36 punktar (betri á seinni níu)
2. Helgi Dan Steinsson GL, 36 punktar (betri á seinni níu)
3. Björn Bergmann Björnsson GK, 36 punktar (betri á seinni níu)

Punktakeppni með forgjöf 10,2 og yfir
1. Dean Edward Marin GL, 41 punktur
2. Njörður Ludvigsson GR, 39 punktar
3. Vilhjálmur E Birgisson GL, 38 punktar

Nándarmælingar
3.hola, Hlynur Sigurdórsson GL, 1.53m
8.hola, Dagmar María Guðrúnardóttir GS, 2.25m
14.hola, Hafsteinn E Hafsteinsson GO, 1.03m
18.hola, Vignir Örn Arnarsson GK, 5.05m

Útdráttur skorkorta
1. Guðni Hörðdal Jónasson
2. Jörundur Jökulsson
3. Björn Harðarsson
4. Haukur Þórisson
5. Kristinn J. Hjartarson
6. Ægir Þór Sverrissson
7. Jón Ármann Einarsson
8. Guðmundur Viktor Gústafsson
9. Bergþór Sveinsson
10. Þorvaldur Frey Friðriksson
11. Pétur Ingason
12. Guðbjörg Sigurðardóttir
13. Hrafnhildur Sigurðardóttir
14. Birgir Arnar Birgisson
15. Guðrún B Sigurbjörnsdóttir

Golfklúbburinn Leynir og Team Rynkeby Ísland þakka öllum kylfingum fyrir þátttökuna og vinningshöfum til hamingju með árangurinn. Ósóttum vinningum verður komið til viðstaddra á næstu dögum.

Styrktaraðilar mótsins fá kærir þakkir fyrir stuðninginn en eftirfarandi aðilar studdu við mótið: Nathan og Olsen/Rynkeby, Innnes/Prins Póló, Norðurál, Hreyfing, Hótel Ísafjörður, Samhentir, Adventures, Golfklúbbur Vestmannaeyja, Lava Centre, Cintamani, Hótel Örk, Into the Glacier, ÍSAM, Bláa Lónið, ÓG Eldvarnamiðstöðin, Caruso Reykjavík, Mathús Garðabæjar, Síminn, Dale Carnegie Þjálfun, Sporthúsið, Nýherji, Raufarhólshellir.

Góðgerðar golfmót Team Rynkeby – skráning á golf.is

Góðgerðar golfmót Team Rynkeby verður haldið á Garðavelli laugardaginn 27. maí 2017. Ræst er út frá kl. 8 – 13 og er skráning í fullum gangi. Enn eru lausir rástímar og eru félagsmenn hvattir til að taka þátt og leggja málefninu lið en allur ágóði rennur til styrktar krabbameinsjúkum börnum.

Leikfyrirkomulag er 18 holu punktakeppni þar sem glæsileg verðlaun að verðmæti um 500.000 eru í boði frá völdum fyrirtækjum sem hafa lagt verkefninu lið.

Skráning á golf.is

Nýliðanámskeið – skráning hafinn

Nýliðanámskeið GL í golfi verða haldin dagana 29. maí, 1. júní og 6. júní n.k. Um er að ræða þrjú skipti þar sem farið verður í undirstöðuatriði golfsins og hefjast námskeiðin kl. 18 og standa til kl. 19.

Námskeiðin eru ætluð þeim félagsmönnum sem gengu í klúbbinn í vetur / vor sem byrjendur eða nýjir félagsmenn og/eða eftir langa fjarveru úr klúbbnum. Kennt verður á æfingasvæðinu Teigum og einnig á púttflöt við golfskála og eru þátttakendur beðnir að mæta í golfskála hverju sinni þar sem umsjónaraðili hittir hópinn.
Dagskrá námskeiðanna verður skv. neðangreindu:
1. Mánudaginn 29. maí kl. 18 – 19 # Grunn atriði golfsins grip, staða og sveifla
2. Fimmtudagur 1. Júní kl. 18 – 19 # Stutta spilið, vipp og pútt
3. Þriðjudagur 6. Júní kl. 18 – 19 # Pútt og sandgryfja.

Skráning á námskeiðin er á netfanginu leynir@leynir.is
Umsjón með námskeiðum hefur Kristvin Bjarnason PGA golfkennari.
Þátttakendur eru vinsamlega beðnir að skrá sig á skrifstofu GL eða senda tölvupóst á leynir@leynir.is. fyrir kl. 20:00 sunnudagskvöldið 28. maí n.k. Ath. ef þátttaka verður mikil verða sett upp fleiri námskeið fyrir þá sem ekki komast á þessi námskeið skv. ofangreindu.