Sigur hjá stelpunum gegn Fjölni

Meistaraflokkur kvenna lék sinn síðasta leik á árinu þegar þær mættu Fjölni í æfingaleik í gærkvöldi.  Leiknum lauk með 3-1 sigri ÍA.  Gréta Stefánsdóttir skoraði fyrsta markið í fyrri hálfleik.  Í síðari hálfleik jöfnuðu Fjölnisstúlkur með sjálfsmarki ÍA en Unnur Elva Traustadóttir og Bergdís Fanney Einarsdóttir tryggðu Skagastelpum sigurinn.   Byrjunarliðið var þannig skipað: Ásta […]

Ásta Vigdís til ÍA

Markvörðurinn Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir hefur samið við ÍA til 1 árs en hún kemur á láni frá Breiðabliki.  Ásta er 19 ára og á fjölmarga U17 og U19 landsleiki að baki en hún lék með Augnabliki í 1.deild síðastliðið sumar og þar áður með ÍA í Pepsideildinni árið 2014.  Ásta er mjög efnilegur og frambærilegur […]

ÍA-HK 6-2

ÍA mætti 1.deildarliði HK síðastliðinn laugardag í síðasta æfingaleik liðsins fyrir jól. Strákarnir byrjuðu leikinn af miklum krafti og eftir aðeins þriggja mínútna leik skoraði Steinar Þorsteinsson eftir góða sendingu frá Jóni Vilhelm. Steinar bætti öðru marki við á 6.mínútu með glæsilegu marki. Hann skoraði þá með laglegu skoti úr vítateignum. Staðan því 2-0 eftir […]

Sigur bæði hjá strákunum og stelpunum

Meistaraflokkur kvenna lagði KR í æfingaleik í Akraneshöllinni í gærkvöldi 2-1.  Það voru Bryndís Rún Þórólfsdóttir og Maren Leósdóttir sem skoruðu mörkin en KR minnkaði muninn undir lok leiksins.  Skagastelpur voru betri aðilinn í leiknum og áttu sigurinn fyllilega skilið. Meistaraflokkur karla lagði HK í morgun 6-2.  Steinar Þorsteinsson og Eggert Kári Karlsson skoruðu 2 […]

Æfingaleikir hjá meistaraflokki karla og kvenna um helgina

Núna um helgina munu meistaraflokkar bæði karla og kvenna taka á móti gestum hér í Akraneshöllinni.   Í kvöld, föstudag 11. desember, kl. 19:00 koma KR stelpur í heimsókn til meistaraflokks kvenna. Um er að ræða æfingaleik sem segja má að sé fyrsti liður okkar stelpna í undirbúningi fyrir átökin í Pepsi-deildinni næsta sumar.  KR-stelpur […]

Jóla-Knattspyrnuskóli KFÍA

Boðið verður upp á Knattspyrnuskóla í Akraneshöllinni fyrir 3.-5. flokk 20.-22. desember næstkomandi. Þjálfarar verða Hjálmur Dór, Skarphéðinn og Aldís Ylfa.   Tilvalið til að gleyma nú ekki alveg boltanum í jólafríinu!   Skráningarform og nánari upplýsingar má finna hér: https://tackk.com/knattspyrnunamskeid

Æfingar falla niður vegna veðurs í dag

Vegna fyrirhugaðs óveðurs í dag 7/12 þá verður íþróttamannvirkjum Akraneskaupstaðar lokað frá kl: 17:00 og því engar æfingar eftir þann tíma. http://www.akranes.is/is/frettir/afleit-vedurspa

Guðrún Valdís meistari með Princeton

 Guðrún Valdís Jónsdóttir markvörður mfl.kvenna ÍA varð á dögunum meistari í Ivy League deildinni. Princeton liðið fór ósigrað í gegnum deildina. Glæsilegur árangur hjá henni og liðsfélögum hennar en 8 lið skipa þessa deild. Þessi góði árangur varð svo til þess að liðið vann sér eitt af 64 sætum í NCAA mótinu, sem er keppni […]

Jólin koma brátt

Tíminn hefur flogið og allt í einu er kominn desember og stutt til jóla. Af því tilefni höfum við ákveðið að setja saman albúm með ÍA-vörum til sölu á facebooksíðu félagsins. Það er aldrei að vita nema hægt sé að finna þar eitthvað smálegt sem hentar vel í jólapakka ÍA-mannsins, ÍA-konunnar eða ÍA-krakkanna!   https://www.facebook.com/media/set/?set=a.1001449046563201.1073741944.154313987943382&type=3