FIMA gerir samning við meistaraflokk.

Mánudaginn 10. febrúar var í fyrsta skipti í sögu Fimleikafélags Akraness undirritaður samningur við meistaraflokk félagsins. Um er að ræða stelpur sem eru 18 ára og eldri. Félagið er virkilega stolt að því að hafa þessar ungu og efnilegu stelpur í okkar hóp og með þennan áfanga í sögu félagsins. Í þessum hópi eru Aþena […]

Ráðstefna um heilsuhegðun ungra Íslendinga

Menntavísindasvið Háskóla Íslands stendur fyrir ráðstefnu um heilsuhegðun ungra Íslendinga og fer ráðstefnan fram fimmtudaginn 27. febrúar kl.15 – 16.30 í Bratta húsnæði HÍ við Stakkahlíð. Ráðstefnan er öllum opin. Nánari upplýsingar er að finna hér.

Námskeið í NÓRA

Vegna mikillar eftirspurnar verða námskeið í næstu viku sem hér segir :   Þriðjudaginn      18. Febrúar 2020                        Grunnnámskeið Miðvikudaginn  19. Febrúar 2020                        Framhald I Fimmtudaginn  20. Febrúar 2020                          Bókhald , fjármál og nýjungar.   Námskeiðin eru haldin kl. 9:15 að Katrínartúni 4 á 8 hæð. , Reykjavík.   Námskeiðin byrja kl 09:15 […]

Hátíðarsalurinn laus um fermingar

Hátíðarsalur ÍA er laus um fermingarnar á Akranesi, m.a. 22. mars og 19. apríl. Hafið endilega samband fyrir nánari upplýsingar og aðrar dagsetningar. Salurinn er hinn glæsilegasti og hentar afar vel fyrir fermingaveislur og aðra mannfagnaði. Nánari upplýsingar um hátíðarsalinn má fá með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan eða senda póst á […]

76. ársþing ÍA verður haldið fimmtudaginn 2. apríl nk.

76. ársþing ÍA verður haldið fimmtudaginn 2. apríl nk. kl: 19:30 í Hátíðarsal ÍA á Jaðarsbökkum. Dagskrá þingsins verður samkvæmt lögum. Dagskrá ársþings ÍA er: a) Þingsetning b) Lögð fram kjörbréf fulltrúa c) Kosning þingforseta og ritara d) Kosning þriggja fulltrúa í kjörbréfanefnd og aðrar starfsnefndir þingsins eftir því sem ákvörðun er tekin um hverju […]

Opnað fyrir umsóknir í styrktarsjóð Skagans og Þorgeirs og Ellerts

Íþróttabandalag hefur opnað fyrir umsóknir í styrktarsjóð Skagans hf og Þorgeirs og Ellerts hf fyrir árið 2020 en eins og kunnugt er veittu fyrirtækin 3 milljónum króna til að efla starf íþróttahreyfingarinnar á Akranesi, þriðja árið í röð. Ekki er stuðst við sérstakar úthlutunarreglur eða leiðbeiningar en styrkurinn er þó fyrst og fremst hugsaður til […]

Skrifstofa ÍA flutt á Jaðarsbakka

Skrifstofa ÍA er flutt á Jaðarsbakka eftir að hafa verið í nokkur ár á Vesturgötunni. Skrifstofan er á þriðju hæð, á milli Sundfélagsins og Knattspyrnufélagsins og verður þar aðsetur framkvæmdastjóra ÍA. Ekki er fastur opnunartími á skrifstofunni þannig að best er að hafa samband við framkvæmdastjórann með smá fyrirvara ef hitta þarf á hann. Um […]

Námskeið í Nóra

Greiðslumiðlun mun halda námskeið í Nóra fyrir starfsmenn íþróttafélaga ef næg þátttaka fæst Þriðjudaginn      11. Febrúar 2020                        Grunnnámskeið Miðvikudaginn  12. Febrúar 2020                        Framhald I Fimmtudaginn  13. Febrúar 2020                         Bókhald , fjármál og nýjungar. Námskeiðin eru haldin kl. 9:15 að Katrínartúni 4, Reykjavík. […]

Skemmtilegur viðburður fyrir ungmenni

Síðastliðið haust gerðist ÍA aðili að UMFÍ. Það er því upplagt að taka þátt í því frábæra starfi sem þar fer fram en ungmennaráð UMFÍ stendur fyrir svokölluðum Skemmtisólarhring fyrir 16 – 25 ára ungmenni dagana 7. – 8. febrúar nk. Viðburðurinn felur í sér hópefli, ratleik, gistingu og alls konar skemmtilegt. Nánari upplýsingar má […]

LÍFSHLAUPIÐ HEFST 5. FEBRÚAR

ALLIR MEÐ Í LANDSKEPPNI Í HREYFINU! Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar […]