ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

76. ársþing ÍA verður haldið fimmtudaginn 2. apríl nk.

76. ársþing ÍA verður haldið fimmtudaginn 2. apríl nk.

10/02/20

#2D2D33

76. ársþing ÍA verður haldið fimmtudaginn 2. apríl nk. kl: 19:30 í Hátíðarsal ÍA á Jaðarsbökkum. Dagskrá þingsins verður samkvæmt lögum.

Dagskrá ársþings ÍA er:
a) Þingsetning
b) Lögð fram kjörbréf fulltrúa
c) Kosning þingforseta og ritara
d) Kosning þriggja fulltrúa í kjörbréfanefnd og aðrar starfsnefndir þingsins eftir því sem ákvörðun er tekin um hverju sinni.
e) Lögð fram ársskýrsla ÍA, félaga og sérráða. Ennfremur lagðir fram reikningar ÍA og sérráða ásamt áætlun um rekstur og fjárfestingar komandi árs. Umræður um skýrslur og reikninga og atkvæðagreiðsla.
f) Afgreiðsla áætlunar um rekstur og fjárfestingar komandi starfsárs.
g) Lagabreytingar. Kosning í laganefnd ef tillaga um lagabreytingar er lögð fram.
h) Lagðar fram tillögur sem borist hafa til stjórnar.
i) Ákvörðun um skattgreiðslur.
j) Álit nefnda, umræður og atkvæðagreiðsla.
k) Kosning fimm fulltrúa í framkvæmdastjórn ÍA, formaður, varaformaður, gjaldkeri, ritari og meðstjórnandi. Formaður og varaformaður skulu kosnir sérstaklega.
l) Kosning tveggja varafulltrúa í framkvæmdastjórn.
m) Kosning fastra nefnda, endurskoðenda og fulltrúa á íþróttaþing ÍSÍ.
n) Tilnefning fulltrúa í sérráð ef sérráð er starfandi.
o) Önnur mál.
p) Þingslit.

Framboð til stjórnar ÍA

Þeir sem óska eftir að vera í framkvæmdarstjórn ÍA skulu senda inn ósk þess efnis eigi síðar en 20. mars n.k.

Ársskýrsla

Ársskýrsla ÍA verður lögð fram rafrænt fyrir þing. Í kjölfar þingsins verða prentaðar ársskýrslur í takmörkuðu upplagi til varðveislu á Héraðsskjalasafni Akraness.

Önnur mál

Minnt er á að óski aðildarfélag eftir því að ákveðið málefni, sem samrýmist starfsemi ÍA, verði tekið fyrir á ársþinginu, skal ósk um slíkt komið á framfæri við aðalstjórn íþróttabandalagsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir ársþing.

Fulltrúar á ársþingi

Ársþing ÍA er fulltrúaþing og hefur hvert aðildarfélag innan ÍA rétt til að senda tvo fulltrúa til þingsins óháð félagafjölda þess. Auk þess kemur einn fulltrúi fyrir hverja 100 félagsmenn. Hámarksfjöldi fulltrúa félags skal vera 10 fulltrúar. Eigi síðar en 20. mars verður gefið út hversu marga þingfulltrúa hvert félag hefur rétt á.

Að auki getur framkvæmdstjórn ÍA boðið gestum til þingsins.

Edit Content
Edit Content
Edit Content