ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

LÍFSHLAUPIÐ HEFST 5. FEBRÚAR

LÍFSHLAUPIÐ HEFST 5. FEBRÚAR

01/02/20

Lífshlaupið

ALLIR MEÐ Í LANDSKEPPNI Í HREYFINU!

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlugserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega.

Lífshlaupið er ótrúlega skemmtilegur og góður vettvangur fyrir þá sem vilja byrja að hreyfa sig eða hreyfa sig nú þegar reglulega og vilja skrá hreyfinguna markvisst, hafa yfirlit og setja sér markmið. En auk þess að hvetja til hreyfingar daglega þá skapar verkefnið skemmtilega stemningu á vinnustöðum og í skólum sem keppa sína á milli og innanhúss. Aðalmarkmiðið er að fá sem flesta til að hreyfa sig sem oftast á meðan á keppninni stendur. Fullorðnir að lámarki 30 mínútur á dag og börn og unglingar að lámarki 60 mínútur á dag.

Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:

  • vinnustaðakeppni frá 5. febrúar – 25. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
  • framhaldsskólakeppni frá 5. febrúar – 18. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (tvær vikur)
  • grunnskólakeppni frá 5. febrúar – 18. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
  • einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið

Eins og ávalt hvetjum við alla Skagamenn til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og skapa skemmtilega stemningu og auka félagsandann á vinnustaðnum/í skólanum. Skráningarferlið er einfalt og þægilegt en fínar leiðbeiningar má finna hér https://lifshlaupid.is/keppnir/ og undir viðeignadi keppni vinstra megin.

Facebook síða lífshlaupsins er hér https://www.facebook.com/lifshlaupid/

Edit Content
Edit Content
Edit Content