Ferðasjóður íþróttafélaga

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Ferðasjóð íþróttafélaga. Frestur til að skila inn umsóknum er til miðnættis 9. janúar 2019.  Ekki verður hægt að taka við umsóknum eftir þann tíma. Umsóknir eru sendar í gegnum rafrænt umsóknarsvæði sjóðsins sem má finna með því að smella hér. Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um […]

Upplýsingar vegna nýrrar persónuverndarlöggjafar

Hér fyrir neðan erum við búin að safna saman nokkrum tenglum á ágæta bæklinga um nýju persónuverndarlöggjöfina.  Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur innihald þeirra en bæklingana og annan fróðleik má finna á heimasíðu Persónuverndar www.personuvernd.is Hver eru þín einkamál https://www.personuvernd.is/einstaklingar/fraedsluefni/baeklingur-einkamal-ungmenna Þínar upplýsingar – þín réttindi https://www.personuvernd.is/einstaklingar/fraedsluefni/baeklingur-almenningur Vinnsluaðilar https://www.personuvernd.is/fyrirtaeki-og-stjornsysla/fraedsluefni/baeklingur-vinnsluadilar Persónuvernd barna https://www.personuvernd.is/einstaklingar/fraedsluefni/baeklingur-personuvernd-barna

Akraneskaupstaður auglýsir eftir umsóknum um styrki

Akraneskaupstaður auglýsir eftir styrkumsóknum til menningar- og íþróttaverkefna á árinu 2019. Við mat og afgreiðslu styrkja til menningarverkefna verður lögð sérstök áhersla á að styðja við verkefni sem vinna að markmiðum Menningarstefnu Akraness sem var samþykkt fyrr á árinu. Við mat og afgreiðslu styrkja til íþróttaverkefna verður lögð áhersla á að styrkja verkefni sem efla íþróttastarf á […]

ÍA fær umhverfisverðlaun Akraneskaupstaðar

Þann 27. október síðastliðinn veitti Akraneskaupstaður einstaklingum og hópum, sem staðið hafa vel að því að fegra bæinn, umhverfisviðurkenningar . Fjölmargar tillögur bárust í ár frá íbúum Akraness til valnefndar og hlaut Íþróttabandalag Akraness viðurkenningu fyrir hóp vegna frumkvæðið að hreinsun í bænum af hálfu iðkenda og þjálfara aðildafélaga innan ÍA. Við erum afar stolt […]

Ruðningur í Akraneshöll!

Þann 3. nóvember nk. taka Einherjar á móti ósigruðu sænsku 2. deildar liði Tyreso Royal Crowns í Akraneshöllinni Við hvetjum því alla til að koma niður í Akraneshöll á laugardaginn klukkan 16:00 og sjá alvöru amerískan fótbolta.

Ráðstefnan „Jákvæð íþróttamenning”

Ráðstefnan „Jákvæð íþróttamenning“ verður haldin í Háskólanum í Reykjavík klukkan 13:00 til 16:00 þann 2. nóvember nk. Miðinn á ráðstefnuna kostar 2500 kr. og hægt er að kaupa miða hér. Sjá auglýsingu hér Vinnustofa í tengslum við jákvæða íþróttamenningu verður haldin 3. og 4. nóvember. Miðinn á vinnustofuna kostar 15.000 kr. – innifalið er ráðstefnan þann 2. nóvember, […]

Skemmtisólarhringur UMFÍ

Ungmennaráð UMFÍ býður ungmennum 16 ára og eldri til þátttöku á sólarhingsviðburði föstudaginn 12. október. Dagskrá viðburðarins er fjölbreytt og skemmtileg en hún hefst klukkan 17:00 í Þjónustumiðstöð UMFÍ Sigtúni 42. Ástráður félag um forvarnarstarf læknanema mun hefja dagskrána með fyrirlestri um kynheilbrigði og umræðum um efni fyrlestursins. Ungmennaráð UMFÍ hefur veg og vanda af […]

ÍA hlýtur styrk til að auka þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi

Í dag tók Hildur Karen Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri ÍA við styrk sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) veittu fimm félögum og ætlaðir eru til að auka þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi. Sjá nánar á http://isi.is/frettir/frett/2018/09/27/fleiri-born/ Það verkefni sem ÍA hlaut brautargengi með snýst um að kortleggja íþrótta- […]

Vel sóttur fyrirlestur um viðbrögð við ofbeldi í íþróttum

Mánudaginn 24. september fengum við Hafdísi Ingu Hinriksdóttur félagsráðgjafa til okkar en hún var með erindi fyrir starfsmenn, þjálfara og stjórnarmeðlimi aðildarfélaga ÍA. Fyrirlesturinn var um ofbeldi í íþróttum og hvernig bregðast eigi við ef slík mál koma upp og tengdist hann innleiðingu á stefnu og aðgerðaráætlun ÍA í málaflokknum. Hafdís Inga hefur mikla þekkingu á þessum […]

Styrktarsjóðir – sæktu um!

Nú er verið að auglýsa nokkra styrktarsjóði sem aðildarfélög ÍA geta sótt um í. Við hvetjum að sjálfsögðu öll aðildarfélög ÍA til að sækja um styrki í þessa sjóði. Þeir sem hafa nú þegar auglýst eftir umsóknum eru: Íþróttasjóður, umsóknarfrestur fyrir 1. október kl. 16:00  https://www.rannis.is/sjodir/umsoknarkerfi Þjálfarastyrkir ÍSÍ, umsóknarfrestur er til 5. október http://isi.is/frettir/frett/2018/09/14/Thjalfarastyrkir-auglystir-til-umsoknar/ Lýðheilsusjóður, […]