ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Styrktarsjóðir – sæktu um!

Styrktarsjóðir – sæktu um!

26/09/18

#2D2D33

Nú er verið að auglýsa nokkra styrktarsjóði sem aðildarfélög ÍA geta sótt um í.

Við hvetjum að sjálfsögðu öll aðildarfélög ÍA til að sækja um styrki í þessa sjóði.

Þeir sem hafa nú þegar auglýst eftir umsóknum eru:

Íþróttasjóður, umsóknarfrestur fyrir 1. október kl. 16:00  https://www.rannis.is/sjodir/umsoknarkerfi

Þjálfarastyrkir ÍSÍ, umsóknarfrestur er til 5. október http://isi.is/frettir/frett/2018/09/14/Thjalfarastyrkir-auglystir-til-umsoknar/

Lýðheilsusjóður, umsóknarfrestur 15. október https://www.landlaeknir.is/um-embaettid/frettir/frett/item35396/Styrkir-ur-Lydheilsusjodi-2019

________________________________________________________________________________________________________________________________

Auglýst eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði

Opið er fyrir umsóknir til 1. október 2018, kl. 16:00.

Styrkir eru veittir til eftirfarandi verkefna:

  • sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana
  • útbreiðslu- og fræðsluverkefna , sérstök áhersla verður lögð á verkefni sem stuðla að þátttöku barna af erlendum uppruna
  • íþróttarannsókna
  • verkefna samkvæmt 13. gr. Íþróttalaga.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknakerfi Rannís fyrir kl. 16:00 mánudaginn 1. október 2018.

https://www.rannis.is/frettir/ithrottasjodur-2018

___________________________________________________________________________________________________________________________________________

Þjálfarastyrkir ÍSÍ

Stjórn Verkefnasjóðs ÍSÍ auglýsir hér með eftir umsóknum um þjálfarastyrki ÍSÍ. Þjálfarastyrkir ÍSÍ eru veittir íþróttaþjálfurum sem sækja sér menntun erlendis í formi námskeiða eða ráðstefna og bæta þekkingu sína í þjálfun, sem mun nýtast íþróttahreyfingunni á Íslandi. Umsóknarfrestur er til 5. október og er upphæð hvers styrkjar að hámarki 100.000 krónur. Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem finna má á vefsíðu ÍSÍ hér.

Umsókn sendist á ragnhildur@isi.is eða merkt Þjálfarastyrkur til: Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.

http://isi.is/frettir/frett/2018/09/14/Thjalfarastyrkir-auglystir-til-umsoknar/

____________________________________________________________________________________________________________________________________________

Styrkir úr Lýðheilsusjóði 2019

Lýðheilsusjóður óskar eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til heilsueflingar og forvarna.

Áhersla er lögð á eftirfarandi:

  • Aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu.
  • Verkefni sem tengjast geðrækt barna.
  • Aðgerðir sem miða að heilbrigðu mataræði, svefni og hreyfingu.
  • Áfengis-, vímu- og tóbaksvarnir.
  • Verkefni sem tengjast kynheilbrigði.
  • Verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu, eða verkefni sem eru til þess fallin að stuðla að auknu jafnrétti kynjanna í tengslum við heilsu.

Við úthlutun verður tekið mið af eftirfarandi stefnum:

Verkefni sem uppfylla eftirtalin skilyrði hafa forgang:

  • Sem unnin eru í víðtæku samstarfi hagsmunaaðila.
  • Eru með eigin fjármögnun eða aðra fjármögnun.
  • Verkefnin eiga að byggja á faglegum grunni og hafa raunhæf og skýr markmið.

Gera þarf grein fyrir því hvernig árangur verkefnis verður metinn og skal skila framvinduskýrslu að verkefni loknu.

Opnað verður fyrir umsóknir þann 20. september en frestur til að sækja um rennur út þann 15. október 2018.

Sótt er um á vefsvæði Lýðheilsusjóðs Opnast í nýjum glugga

Sjá nánar auglýsingu Opnast í nýjum glugga(PDF)

 

Edit Content
Edit Content
Edit Content