ÍA klifrarar skelltu sér norður í land yfir helgina og klipu í norðlenskt berg, í Munkaþverárgili rétt fyrir utan Akureyri. Brimrún Eir Óðinsdóttir leiddi “Róló” (5.6) og “Sófus” (5.8) og tók nokkrar vinnuferðir í “Undir brúnni” (5.9), “Bláu ullinni” (5.9) og “Englaryki (5.9) og verða þær settar á To-do listann fyrir næstu ferð. Sylvia Þórðardóttir […]

ÍA klifrarar fjölmenntu í klifur í Akrafjall

ÍA klifrarar nýttu sér veðurblíðuna í dag og fjölmenntu í Akrafjallið ásamt stórum hóp höfuðborgarbúa sem skoðuðu nýju leiðirnar okkar. Nokkur klifurafrek voru unnin í dag og margir sem klifruðu sína fyrstu leið: Gyða Alexandersdóttir klifraði “Sæta álfinn” í ofanvaði, Sylvía Þórðardóttir leiddi “Varðmenn spýjunnar”, Brimrún Eir Óðinsdóttir leiddi nýja leið “Mulning” í fyrstu tilraun, […]

Frábær árangur hjá ÍA á Bikarmóti Íslands.

Brimrún Eir Óðinsdóttir tryggði sér annað sætið í flokki unglingsstúlkna á glæsilegu Bikarmeistaramóti Íslands í klifri sem fram fór í Klifurhúsinu um helgina. Stúlkurnar klifruðu fjórar leiðir og Brimrún Eir toppaði þrjár leiðir í fjórum tilraunum. Gabríela Einarsdóttir úr Björkinni toppaði þrjár leiðir í þremur tilraunum og fór því með sigur af hólmi. Brimrún Eir […]

Útiklifur tímabilið hófst með stæl hjá ÍA.

Þrátt fyrir vafasama verðuspá, haglél á köflum og kulda, klifruðu ÍA klifrarar ásamt gestum af höfuðborgarsvæðinu í Akrafjalli á árlegu “Sumardaginn fyrsta” klifri, viðburður sem hefur fest sig í sessi síðast liðin ár. Mikil vinna hefur farið í að undibúa svæðið með boltun og hreinsu klifurleiða og eru nú níu fullbúnar línuklifurleiðir í Akrafjalli. Fleiri […]

Vel heppnað þriðja mót vetrarins.

Klifurmót 3 fór fram í Klifurhúsinu í dag og fjölmenntu ÍA klifrarar á mótið. Tæplega tuttugu klifrarar renndu gegnum Hvalfjarðargöngin og skelltu sér á vegginn. Í aldursflokknum 6-8 ára náðu stigaáskorun mótsins þau Stígur Bergmann, Guðjón Gauti og Þórkatla Þyrí. Í 9-12 ára flokknum náði Sverrir Elí stigaáskorun síns flokks. Í unglingaflokki keppti Brimrún Eir […]

Opið fyrir skráningu í klifur

Skráning er er hafin í klifur gegnum skráningarkerfi ÍA (http://ia.is/almennt-um-ia/idkendasida-ia/) og hefjast æfingar formlega þriðjudaginn 10. jan. Hópaskipting og æfingatímar verða eins og hér segir (áskiljum okkur þó rétt til breytinga): 1-2 bekkur: Þriðjudagar og fimmtudagar 14.00-14.40 3-4 bekkur: Þriðjudagar og fimmtudagar 14.50-15.50 5-10 bekkur: Þriðjudagar og fimmtudagar 15.50-17.00 og laugardagar 10.30-12.00. Áfram verða fjöldatakmarkanir […]

Brimrún Eir klifraði til bronsverðlauna

Íslandsmeistarmótið í línuklifri fór fram í Björkinni í Hafnarfirði í gær og keppt var í þremur aldursflokkum. ÍA sendi fjóra klifrara til þátttöku og er þetta í fyrsta sinnn sem ÍA tekur þátt í slíku móti. Mótið fór þannig fram að klifrarar fara allir tvær leiðir og fjórir efstu í hverjum flokki fara áfram í […]

Metþátttaka á öðru móti vetrarins.

Annað mót vetrarins var haldið í Klifurhúsinu í Reykjavík. Fjölmargir ungir klifrarar mættu til þátttöku og áætlað var að um 90 klifrarar hafi tekið þátt. Nálægt 20 klifrarar frá ÍA á aldrinum 6-16 ára mættu til leiks og það var virkilega gaman að sjá svona mörg ÍA merki í húsinu. Krakkarnir stóðu sig mjög vel og […]

Hrekkjavökumót ÍA

Klifurfélag ÍA hélt Hrekkjavökumót fyrir iðkendur sína í dýflissunni á Vesturgötu. Mótið var tvískipt, annars vegar klifruðu 1-3 bekkingur saman fyrr um daginn og 4-6 bekkingar saman síðar um daginn. Alls tóku 25 klifrarar þátt og áhorfendastúkan var þéttsetin. Framundan hjá ÍA er mót fyrir klifrara í Reykjavík 20. nóvember og í byrjun desember verður […]

Íslandsmeistaramótaröðin er hafin.

Fyrsta mót vetrarins var haldið í Klifurhúsinu í Reykjavík í dag og tóku 15 klifrarar frá ÍA þátt. Guðjón Gauti, Sylvía, Sverri Elí og Stígur náðu stigamarkmiðum síns aldurflokks og í unglingaflokki hafnaði Brimrún Eir í þriðja sæti.