ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Frábær árangur hjá ÍA á Bikarmóti Íslands.

Frábær árangur hjá ÍA á Bikarmóti Íslands.

25/04/17

Brimrún Eir Óðinsdóttir sem tryggði ÍA annað sætið,  ásamt þjálfara sínum.

Brimrún Eir Óðinsdóttir tryggði sér annað sætið í flokki unglingsstúlkna á glæsilegu Bikarmeistaramóti Íslands í klifri sem fram fór í Klifurhúsinu um helgina. Stúlkurnar klifruðu fjórar leiðir og Brimrún Eir toppaði þrjár leiðir í fjórum tilraunum. Gabríela Einarsdóttir úr Björkinni toppaði þrjár leiðir í þremur tilraunum og fór því með sigur af hólmi. Brimrún Eir hafði áður tryggt sér annað sætið á Íslandsmeistaramótaröðinni á eftir Gabríelu. Þar með er keppnistímabilinu lokið og útitímabilið farið í gang en það hófst formlega á Sumardaginn fyrsta með útiklifri í Akrafjalli. Þar mættu klifrarar frá ÍA ásamt gestum af höfuðborgarsvæðinu og klifruðu nýjar leiðir og léttu örlitla snjókomu og rok ekki á sig fá. Framundan hjá ÍA í sumar eru samnorrænar æfingabúðir sem verða haldnar á Íslandi. Þar munu sterkustu klifrarar norðurlandanna á aldrinum 12-18 ára hittast og æfa saman yfir heila viku.

Edit Content
Edit Content
Edit Content