AÐALFUNDUR BRESA

Aðalfundur Bresa verður haldinn fimmtudaginn 8.apríl kl. 19:30. Fer fundurinn fram í íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórn Bresa

BLAK – BLAK – BLAK

Farið er að síga á seinni hluta blakársins sem að þessu sinni er þó ívið lengra en oft áður. Bresi hefur lokið keppni í 2.deild á Íslandsmótinu og endaði í neðsta sæti í sínum riðli. Síðasti leikurinn fór fram s.l. fimmtudag á Jaðarsbökkum en þá fékk Bresi ÍK í heimsókn. Lauk leiknum með sigri ÍK […]

Nóg að gera hjá Bresa

Um síðustu helgi var nóg um að vera hjá konunum í Bresa. Félagið sendi tvö lið á hraðmót HK sem haldið var laugardaginn 16. janúar. Var annað liðið skráð í 1.deild og hitt í 3.deild. Í 1.deildinni voru 6 lið og endaði Bresi í 4.sæti með 6 stig. Liðið spilaði 5 leiki og enduðu fjórir […]

Viltu koma í blak

Viltu koma í blak? Blakfélagið Bresi óskar eftir konum á besta aldri 16 ára og eldri til að koma og prófa/æfa blak. Æfingar eru 2 í viku: Mánudögum 19:30-21:00 í íþróttahúsinu á vesturgötu. Fimmtudögum 20:00-21:30 í íþróttahúsinu að jaðarsbökkum. Hlökkum til að sjá ykkur! Nánari upplýsingar veitir Steindóra Steinsdóttir s. 8919810 steindora.steinsdottir@akranes.is Bresi spilar við […]

Bresi vann Fylki á sunnudaginn

Bresi heldur áfram sigurgöngu sinni. Á sunnudaginn unnu stelpurnar Fylki b í spennandi leik. Spila varð oddahrinu og lauk henni með sigri Bresa 15-8. Úrslit hrinanna var 23-25, 25-23, 25-21, 23-25 og á þessum tölum má sjá að leikurinn var mjög spennandi. Næsti leikur Bresa verður á Jaðarsbökkum sunnudaginn 22.nóv. á móti Sjjörnunni. Stjarnan er […]

Sigur í fyrsta heimaleiknum

Bresi sigraði HK b 3:2 í fyrsta heimaleik þessarar leiktíðar. Leikurinn var æsispennandi en fyrstu hrinurnar þrjár fóru 25-16, 22-25, 23-25. Nú var að duga eða drepast fyrir Bresa og af miklu harðfylgi tókst stelpunum að koma leiknum í odd með því að sigra 4. hrinuna 25-22. Spennan hélst og oddurinn endaði 15-13 fyrir Bresa. […]

Keppni í 2.deild í blaki hafin

Bresi lék fyrsta leik sinn á Íslandsmótinu s.l. laugardag. Leikurinn var við Þrótt og fór fram í íþróttahúsi Kennaraháskólans. Ekki gekk Bresakonum nógu vel að þessu sinnni og fór leikurinn 3:1 fyri Þrótt. (25-12, 23-25, 25-14, 25-18). Með Þrótti lék fyrverandi landsliðskona frá Georgíu og áttu Bresakonur erfitt með að sjá við laumum hennar. Spilaði […]

Bresi hársbreidd frá gulli

Bresi sendi lið á fyrst mót nýs keppnistímabils í blaki. Var það haustmót BLÍ sem haldið var laugardaginn 26.september í Kópavoginum. Sendi Bresi eitt lið og lék það í 2. deild en leikið var í tveimur riðlum. Er skemmst frá því að segja að Bresi sigraði sinn riðil með glæsibrag. Tapaði einungis tveimur hrinum og […]

Bresi á Öldung

Um síðustu helgi fór fram Öldungamót BLÍ. Að þessu sinni var mótið haldið á Seyðisfirði og Egilsstöðum. Sjaldan eða aldrei hafa fleiri lið mætt á mótið og var leikið í níu kvennadeildum og fimm karladeildum (103 lið). Bresi sendi tvö lið að þessu sinni og léku þau í 3. og 4. deild. Í þriðju deild […]

Bresi í 6.sæti í 2.deild suður.

Bresi hefur lokið keppni á Íslandsmótinu í blaki þetta árið. Bresi lék í 2.deild kvenna suður en sú deild er spiluð í tveimur 5 liða riðlum. Endaði Bresi í 3. sæti í sínum riðli og lék um 5 sæti við lið HK B. Spilaðir voru tveir leikir – heima og heiman. Fimmtudaginn 12.mars var leikið […]