ÍA nældi í mikilvægt stig fyrir norðan
Meistaraflokkur karla mætti KA í sjöunda leik Íslandsmótsins sem fram fór við ágætar aðstæður á Akureyrarvelli. KA byrjaði leikinn af miklum krafti
Næsti slagur í Pepsideildinni
Í þessum töluðu (skrifuðu) orðum er meistaraflokkur karla á leið til Akureyrar þar sem þeir heimsækja KA í sjöundu umferð
Leyniskrakkar á fullri ferð í GSÍ mótum
Keppt var á Áskorendamótaröð Íslandsbanka og Íslandsbankamótaröðinni um helgina.
1. deild kvenna: Jafntefli gegn Hömrunum fyrir norðan
Síðastliðinn laugardag, 10. júní, heimsóttu stelpurnar okkar í meistaraflokknum lið Hamranna á Akureyri í fimmtu umferð 1. deildar kvenna. Norðanstúlkur
Golfklúbburinn Leynir gerir afrekssamning við Valdísi Þóru
Golfklúbbur Leynir og Valdís Þóra Jónsdóttir skrifuðu undir afrekssamning s.l. helgi þegar styrktarmót Valdísar Þóru fór fram á Garðavelli.
Um er að ræða tímamótasamning sem innifelur stuðning við atvinnukylfinginn Valdísi Þóru sem keppir á Evrópumótaröð kvenna (Ladies European Tour) og leikur undir merkjum Leynis. Golfklúbburinn Leynir hefur markvisst síðustu misseri unnið að undirbúning samninga við kylfinga Leynis og er þetta fyrsti samningurinn af þessum toga við afrekskylfing úr röðum Leynis. Með samning af þessum toga vill Golfklúbburinn Leynir gera afrekskylfingum kleift að iðka golfíþróttina og efla sig til að ná enn betri árangri.
Samningurinn felur m.a. í sér að Leynir styrkir Valdísi Þóru vegna mótahalds á Eimskipsmótaröðinni og Evrópumótaröð kvenna ásamt öðrum stuðning er varðar aðgengi að Garðavelli fyrir styrktarmót, og afnot af æfingasvæði og æfingaboltum Leynis án endurgjalds.
Mynd: Valdís Þóra Jónsdóttir og Guðmundur Sigvaldason framkvæmdastjóri Leynis við undirskrift afrekssamnings.
Vel heppnað styrktarmót Valdísar Þóru
Styrktarmót Valdísar Þóru fór fram á Garðavelli laugardaginn 10. júní í frábæru veðri þar sem vallaraðstæður voru mjög góðar þar sem þátttakendur voru um 180.
Valdís Þóra og Golfklúbburinn Leynir þakka öllum fyrir þátttökuna og stuðninginn og vinningshöfum til hamingju með verðlaunin.
Úrslit mótsins má sjá hér en önnur helstu úrslit voru eftirfarandi og verður vinningum komið á alla verðlaunahafanna í komandi viku:
1. Skelin – 51 punktur, 25 punktar á seinni 9: 2x 100.000 gjafabréf á Novo Sancti haust 2017, 2x gjafakort í Laugarvatn Fontana Spa
2. H + V – 51 punktur, 24 punktar á seinni 9: 2x 35.000 kr gjafabréf frá Safari Quad Ferðum, 2x Srixon brautartré frá Erninum Golfbúð, 2x pizzasteinn a grill frá Grillbúðinni, 2 Rosemark grip með ásetningu
3. Tveir Latir – 46 punktar, 24 á seinni 9: 2x FJ skór frá Íslensk Ameríska, 1x ferðagasgrill frá Grillbúðinni, 1x kvenhálsmenn frá Dyrfinnu, , 2x hnífar frá Hnífar.is
4. Kaskó – 46 punktar, 23 á seinni 9: 2x 20.000 kr gjafabréf frá Ecco versluninni í Kringlunni, 2x 8000 kr scratch landakort frá Rammar og Myndir, 2x 10.000 kr kúlukort í Hraunkot
5. Shaq & Kobe – 46 punktar, 22 á seinni 9. 2x 15.000 kr gjafabréf frá Úrval Útsýn, 2x 7500 kr gjafabréf frá Ozone, 2x 10.000 kr kúlukort í Hraunkot, 2 Rosemark grip með ásetningu
Nándarverðaun:3. hola: Eiríkur Ólafsson GB 2,73m – Hótel Hamar: gisting fyrir 2 og morgunverður, Hringur fyrir tvo á Garðavelli og 2,5 kg kjötúttekt hjá Stjörnugrís
8. hola: Bjarni Þór Bjarnason GL 1,28 m – Hótel Húsafell: gisting fyrir 2 og morgunverður, gjafabréf á Golfvöllinn í Húsafelli og 2,5 kg kjötúttekt hjá Stjörnugrís
14. hola: Gunnar Skúlason GR 0,79m – Hótel Stracta Hellu : gisting fyrir 2 og morgunverður, 18 holu hringur fyrir 2 á GHR og 2,5 kg kjötúttekt hjá Stjörnugrís
18. hola: Halldór Bragason 1,50m – Hótel Selfoss: gisting fyrir 2 og morgunverður, Hringur hjá GOS fyrir 2 og 2,5 kg kjötúttekt hjá Stjörnugrís
Lengsta drive karla: Sigurður Elvar Þórólfsson – Hótel Bifröst: Gisting fyrir 2 og morgunverður, Hringur fyrir 2 á garðavelli, ermahnappar frá Dýrfinnu Torfa gullsmið og stór pizza af matseðli, eftirréttur og 2L gos frá Dominos
Lengsta drive kvenna: Tinna Jóhannsdóttir – Hótel Örk: Gisting fyrir 2 og morgunverður, 1 Gjafabréf fyrir 2 á GHG, hálsmen frá Finnur Design gullsmiður og stór pizza af matseðli, eftirréttur og 2L gos frá Dominos
Random sæti í happadrætti:1. 68. Sæti Hákon – 14.000 mynd frá @home, krullujárn og klipping frá Hárhúsi Kötlu, 2 hringir á GK
2. 26. Sæti Hinrik Kristjáns – 2x 5000 kr gjafabréf frá Galito, 2x 10.000 kr gjafabréf í mælingu hjá Golfkylfur.is
3. 45. sæti Reynir Sigurbjörns – 2x hárvörupakkar frá Hárstúdíó, Headphone frá Símanum, Vínkarafla frá GS Import
4. 50. Sæti KÍA -2x 6000 kr gjafabréf frá Versluninni Nínu, 1x gjafabréf fyrir 2 á GHG, 2 Rosemark grip með ásetningu
5. 48. Sæti JG – 1x hárvörur frá Mozart, 1x andlitsbað frá Face, 2x stór búlluborgaramáltíð á Hamborgarabúllunni
6. 56. Sæti Afmælisbarnið – 2x sápur frá Módel, 2 hringir á GK, 2 Geisner Grip með ásetningu
Púttmót:Vala María – 5000 kr gjafabréf frá Gamla Kaupfélaginu
Ingibjörg Stefáns – shampoo & hárnæring frá Apótek Vesturlands
Hrönn – Katy Perry pakki frá Apóteki Vesturlands
Viktor Elvar – Ilmvatns pakki frá Bjarg
Trausti Jónsson, Þórunn Helgadóttir, Pétur Pétursson, Guðrún Einarsdóttir – stór pizza af matseðli, eftirréttur og 2L gos frá Dominos
Valgeir Sigurðsson, 2x stór búlluborgaramáltíð á Hamborgarabúllunni
Frans Páll, 2x stór búlluborgaramáltíð á Hamborgarabúllunni
Hannes Marinó, Alexander Már, Tristan Freyr, Hildur Karen – 1x 30kennsla hjá KÓK
Halldór Bragason – kjöthitamælir frá Weber
Steinn Mar Helgasson – gisting fyrir 2 á hótel Örk
Styrktarmót Valdísar Þóru: skráning á golf.is
Styrktarmót Valdísar Þóru verður haldið á morgun laugardaginn 10. Júní á Garðavelli. Ræst er út frá kl. 8:00 til 16:00.
Leikfyrirkomulag er Betri boltinn þar sem tveir spila saman í liði og báðir leika sínum bolta á hverri holu. Um er að ræða punktakeppni með forgjöf og hjá hverju liði gildir betra skorið á hverri holu. Hámarksforgjöf er 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Glæsileg verðlaun eru í boði ásamt teiggjöfum.
Samhliða golfmótinu verður 9 holu púttmót kl. 12 – 16 fyrir alla sem vilja styðja við Valdísi Þóru. Þátttökugjald er kr. 500- og fara þátttakendur í pott og verða dregnir út vinningar að móti loknu.
Mótsgjald er kr. 6.000- og fer skráning fram á golf.is
Ath. Enn eru lausir nokkrir rástímar og hvetjum við félagsmenn GL að taka þátt og styðja við atvinnukylfinginn Valdísi Þóru félagskonu GL.
Valdís Þóra verður fyrsti varamaður á Opna bandaríska mótinu
Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir (GL) komst í bráðbana um sæti á Opna bandaríska mótinu í gær mánudaginn 5. júní. Valdís Þór var grátlega nálægt því að öðlast þátttökurétt á einu af risamótunum í golfi eftir að hafa tekið þátt í 36 holu úrtökumóti sem fór fram hjá Buckinghamshire golfklúbbnum í Englandi.
Opna bandaríska mótið er eitt fimm risamóta í kvennagolfinu en það fer næst fram dagana 10.-16. júlí á þessu ári. Brittany Lang hefur titil að verja en allir bestu kvenkylfingar heims verða meðal keppenda.
Opna CANDINO SWISS WATCH: Hannes og Emil sigruðu
Opna CANDINO SWISS WATCH í boði Guðmundar B. Hannah úra- og skartgripaverslunar á Akranesi var haldið á Garðavelli mánudaginn 5. Júní. Mótið tókst í alla staði vel með frábæru veðri, góðum vallaraðstæðum og mjög góðri þátttöku um 100 kylfinga.
Helstu úrslit voru eftirfarandi:
Punktakeppni með forgjöf
1. Emil Kristmann Sævarsson GL, 39 punktar (betri á seinni níu)
2. Jón Vilhelm Ákason GL, 39 punktar
3. Hróðmar Halldórsson GL, 38 punktar
Höggleikur án forgjafar (besta skor)
1. Hannes Marinó Ellertsson GL, 71 högg
Nándarmælingar
8. hola (konur), María B. Sveinsdóttir GL, 3.75m
18. hola (karlar), Davíð Búason GL, 1.02m
Golfklúbburinn Leynir óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar kylfingum fyrir góða þátttöku og stuðning við starf klúbbsins sem og Guðmundi B.Hannah fyrir góðan stuðning við mótið. Vinningshafar geta sótt vinninga á skrifstofu GL.
Skagamenn töpuðu gegn Breiðablik í fjörugum leik
Meistaraflokkur karla mætti Breiðablik í sjötta leik Íslandsmótsins sem fram fór við ágætar aðstæður á Norðurálsvelli. Blikar byrjuðu leikinn af