Opnum á ný

Ákveðið hefur verið að opna allt aftur hjá ÍA Þreksalir á Jaðarsbökkum opna kl. 6 mánudaginn 8. nóvember. Viljum við minna á 1 meters fjarlægðarmörk gilda og viljum við biðja fólk um að virða það. Allir þurfa að passa upp á sínar persónulegu sóttvarnir og fara varlega. Áfram ÍA  

Allar æfingar falla niður í ljósi stöðunnar á Akranesi

Í ljósi stöðunnar sem upp er komin á Akranesi, ætlum við að sýna samfélagslega ábyrgð og fella ALLAR æfingar niður frá með núna fimmtudaginn 4.11.2021 til mánudagsins 8.11.2021 hið minnsta. Þetta er gert til þess að lágmarka enn frekari útbreiðlsu á smitum eins og hægt er. Við viljum ná utan um verkefnið eins vel og […]

Þreksalir á Jaðarsbökkum loka aftur

Því miður verðum við að tilkynna lokun á þreksölum á Jaðarsbökkum. Þreksalur lokar frá og með kl. 14:00 í dag, fimmtudag 04.11.2021 til mánudagsins 08.11.2021. Þetta er gert vegna stöðunnar sem upp er komin á Akranesi. Vonumst til þess að geta opnað aftur kl. 06 á mánudagsmorgun þann 8. nóvember  

Stofnþing Klifursambands Íslands

Stofnþing Klifursambands Íslands var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal  27. september 2021. Með stofnun þessa nýja sérsambands eru sérsambönd ÍSÍ orðin 34 talsins. Sex íþróttahéruð og sex íþróttafélög áttu þingfulltrúa á þinginu. Manuela Magnúsdóttir var kjörin fyrsti formaður sambandsins en aðrir í stjórn Klifursambandsins voru kjörin til tveggja ára þau Rúna Thorarensen og Vikar Hlynur […]

Leikfimi fyrir eldri borgara

Fimleikafélagið býður upp á leikfimi fyrir eldri borgara á þriðjudagsmorgun kl 10-11 í fimleikasalnum okkar í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Námskeiðið er 4 skipti og hefst 5 október. Áherslur námskeiðsins eru líkamsnudd með frauð rúllum, léttar æfingar og teygjur undir leiðsögn þjálfara. Hægt að skrá sig á staðnum eða í gegnum tölvupóst thordis@ia.is Gjald fyrir námskeiðið […]

Skemmtilegur fyrirlestur á morgun 22. september

Byrjum hreyfiviku ÍSÍ á því að hreyfa hausinn og hlusta á fyrirlestur. Dr. Viðar Halldórsson prófessor í íþróttafélagsfræði kemur og  flytur fyrirlestur um áhugaverð málefni tengt íþróttum, áhugahvöt, samskiptum og fleira. Verður í  Frístundamiðstöðinn við Garðavelli. Fyrirlesturinn verður haldinn miðvikudaginn 22. September kl. 20:00, heimilt er að vera á staðnum á meðan húsrúm leyfir og […]

Kvennahlaup var 11. sept

Kvennahlaup ÍSÍ og Sjóvá var haldið á Akranesi þann 11. september s.l.  Þátttakendur fengu mjög flott veður til hlaupsins, en veðurspá hafði ekki verið góð fyrir daginn. Um 20 konur – stúlkur tóku þátt að þessu sinni. 3.fl. kvenna í knattspyrnu tóku stóran þátt í umgjörð hlaupsins og sáu til þess að allir færu réttar […]

Minningarorð frá Badmintonfélaginu

Í dag minnumst við Harðar Ragnarssonar sem lést þriðjudaginn 7. september og verður jarðsunginn í dag 16. september. Hörður var einn af stofnendum Badmintonfélags Akraness og jafnframt fyrsti formaður þess. Hörður á heiðurinn á merki félagsins en hann fékk Smára Hannesson til að teikna merki félagsins 1976. Einnig flutti Hörður inn badmintonvörur Kawasaki sem margir […]

Íþróttafélagið Þjótur auglýsir eftir þjálfara

Íþróttafélagið Þjótur auglýsir eftir þjálfara í Boccia. Æfingar eru 2x í viku. mánudaga og miðvikudaga klukkan 18.00. Frekari upplýsingar veitir Freyja Þöll í síma 849-2206. Einnig er hægt að senda fyrirspurn og  umsóknir á freyjasm@gmail.com

Verkferlar

Til upplýsinga Kæru félgasmenn, forráðamenn og almennir  ÍA-ingar Í ljósi umræðunar undanfarna daga viljum við upplýsa alla okkar félagsmenn um þá verkferla og þann vettvang sem ÍA nýtir sér við aðstoð tilkynninga og úrvinnslu slíkra málefna. Mikilvægt er að einstaklingar sem orðið hafa fyrir einhverskonar ofbeldi eða óæskilegri hegðun geti leitað til óháðs aðila sem […]