ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Stofnþing Klifursambands Íslands

Stofnþing Klifursambands Íslands

28/09/21

KI_stjorn_og_varastjorn - Copy (2)

Stofnþing Klifursambands Íslands var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal  27. september 2021.

Með stofnun þessa nýja sérsambands eru sérsambönd ÍSÍ orðin 34 talsins. Sex íþróttahéruð og sex íþróttafélög áttu þingfulltrúa á þinginu.

Manuela Magnúsdóttir var kjörin fyrsti formaður sambandsins en aðrir í stjórn Klifursambandsins voru kjörin til tveggja ára þau Rúna Thorarensen og Vikar Hlynur Þórisson og til eins árs þeir Örn Árnason og Elmar Orri Gunnarsson.

Varamenn stjórnar voru kjörin þau Ásrún Mjöll Stefánsdóttir, Arnór Már Guðmundsson og Björn Baldursson.

Lög sambandsins voru samþykkt samhljóða. Íþróttin varð ólympísk íþrótt þegar skipuleggjendur Ólympíuleikanna í Tókýó völdu hana sem eina af þeim valgreinum sem skipuleggjendum er heimilt að velja fyrir leikana í viðkomandi landi. Klifurkeppnin á Ólympíuleikunum var æsispennandi og áhorf á greinina var mikið.

Ljóst er að hún hefur skapað sér sess á leikunum þar sem framkvæmdanefnd Ólympíuleikanna í París hefur þegar tilkynnt að klifur verði einnig á meðal keppnisgreina þar árið 2024.

Klifurfélag Akranes er aðili að þessu nýja sérsambandi og á fulltrúa í varastjórn hann Arnór Má Guðmundsson.

Frétt ÍSÍ um stofnun Klifursambands Íslands

Edit Content
Edit Content
Edit Content