Þreksalur – skráningarskylda og takmarkanir
ÍA vill vekja athygli á takmörkunum í þreksölum á Jaðarsbökkum vegna mikilla smita í samfélaginu. Vegna þrengsla í þreksölum á Jaðarsbökkum verðum við að grípa til takmarkanna. Það verður skráningarskylda frá og með morgundeginum 13. nóvember , en einnig fjöldatakmarkanir. Salur 2 / Gervigrassalur verður lokaður almenningi og einungis þeir sem skráðir eru í tímatöflu […]
Tökum þátt og syndum
Nú stingum við okkur til sunds og syndum hringinn í kringum landið! ÍA hvetur Skagamenn til þess að taka þátt í landsátaki í sundi og skrá ykkar vegalengd í hvert skipti sem þið syndið inn á www.syndum.is Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á www.syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér […]
Opnum á ný
Ákveðið hefur verið að opna allt aftur hjá ÍA Þreksalir á Jaðarsbökkum opna kl. 6 mánudaginn 8. nóvember. Viljum við minna á 1 meters fjarlægðarmörk gilda og viljum við biðja fólk um að virða það. Allir þurfa að passa upp á sínar persónulegu sóttvarnir og fara varlega. Áfram ÍA
Allar æfingar falla niður í ljósi stöðunnar á Akranesi
Í ljósi stöðunnar sem upp er komin á Akranesi, ætlum við að sýna samfélagslega ábyrgð og fella ALLAR æfingar niður frá með núna fimmtudaginn 4.11.2021 til mánudagsins 8.11.2021 hið minnsta. Þetta er gert til þess að lágmarka enn frekari útbreiðlsu á smitum eins og hægt er. Við viljum ná utan um verkefnið eins vel og […]
Þreksalir á Jaðarsbökkum loka aftur
Því miður verðum við að tilkynna lokun á þreksölum á Jaðarsbökkum. Þreksalur lokar frá og með kl. 14:00 í dag, fimmtudag 04.11.2021 til mánudagsins 08.11.2021. Þetta er gert vegna stöðunnar sem upp er komin á Akranesi. Vonumst til þess að geta opnað aftur kl. 06 á mánudagsmorgun þann 8. nóvember
Stofnþing Klifursambands Íslands
Stofnþing Klifursambands Íslands var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 27. september 2021. Með stofnun þessa nýja sérsambands eru sérsambönd ÍSÍ orðin 34 talsins. Sex íþróttahéruð og sex íþróttafélög áttu þingfulltrúa á þinginu. Manuela Magnúsdóttir var kjörin fyrsti formaður sambandsins en aðrir í stjórn Klifursambandsins voru kjörin til tveggja ára þau Rúna Thorarensen og Vikar Hlynur […]
Leikfimi fyrir eldri borgara
Fimleikafélagið býður upp á leikfimi fyrir eldri borgara á þriðjudagsmorgun kl 10-11 í fimleikasalnum okkar í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Námskeiðið er 4 skipti og hefst 5 október. Áherslur námskeiðsins eru líkamsnudd með frauð rúllum, léttar æfingar og teygjur undir leiðsögn þjálfara. Hægt að skrá sig á staðnum eða í gegnum tölvupóst thordis@ia.is Gjald fyrir námskeiðið […]
Skemmtilegur fyrirlestur á morgun 22. september
Byrjum hreyfiviku ÍSÍ á því að hreyfa hausinn og hlusta á fyrirlestur. Dr. Viðar Halldórsson prófessor í íþróttafélagsfræði kemur og flytur fyrirlestur um áhugaverð málefni tengt íþróttum, áhugahvöt, samskiptum og fleira. Verður í Frístundamiðstöðinn við Garðavelli. Fyrirlesturinn verður haldinn miðvikudaginn 22. September kl. 20:00, heimilt er að vera á staðnum á meðan húsrúm leyfir og […]
Kvennahlaup var 11. sept
Kvennahlaup ÍSÍ og Sjóvá var haldið á Akranesi þann 11. september s.l. Þátttakendur fengu mjög flott veður til hlaupsins, en veðurspá hafði ekki verið góð fyrir daginn. Um 20 konur – stúlkur tóku þátt að þessu sinni. 3.fl. kvenna í knattspyrnu tóku stóran þátt í umgjörð hlaupsins og sáu til þess að allir færu réttar […]
Minningarorð frá Badmintonfélaginu
Í dag minnumst við Harðar Ragnarssonar sem lést þriðjudaginn 7. september og verður jarðsunginn í dag 16. september. Hörður var einn af stofnendum Badmintonfélags Akraness og jafnframt fyrsti formaður þess. Hörður á heiðurinn á merki félagsins en hann fékk Smára Hannesson til að teikna merki félagsins 1976. Einnig flutti Hörður inn badmintonvörur Kawasaki sem margir […]