Kjör íþróttamanns Akraness
Þann 6. janúar næstkomandi verður tilkynnt um val á íþróttamanni Akraness árið 2017. Athöfnin fer fram í Íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum að lokinni þrettándabrennu. Búið er að opna fyrir kosningu um val á íþróttamanni Akraness og er kosningin opin frá 21. desember til og með 3. janúar. Eyðublað og frekari upplýsingar um þá sem tilnefndir eru, má […]
Vel heppnuð Jólastund
Jólastund á Jaðarsbökkum
[et_pb_section admin_label=”section”][et_pb_row admin_label=”row”][et_pb_column type=”4_4″][et_pb_text admin_label=”Text”] Minnum á að Sundfélag Akraness, Akraneskaupstaður og ÍA bjóða upp á aðventustund á pottasvæðinu á Jaðarsbökkum föstudaginn 22. des. frá 17:30 – 18:30 Boðið verður upp á jólakakó og mun sundfélagsfólk sjá um lifandi jólatónlist. Allir velkomnir! [/et_pb_text][/et_pb_column][/et_pb_row][/et_pb_section]
Jólamót Klifurfélags ÍA
Um helgina hittust ÍA klifrarar á Jólamóti ÍA í aðstöðu klifurfélagsins að Vesturgötu. Um 30 klifrarar mættu prúðbúin til leiks og glímdu við 13 klifurleiðir sem leiðasmiðir ÍA höfðu sett upp. Mótið heppnaðist afar vel enda hafði félagið lagt mikinn metnað í að gera það sem skemmtilegast fyrir iðkendur og áhorfendur. Leiðasmiðir lögð mikla vinnu […]
Íbúar á Akranesi fá fjölnota poka að gjöf
Akraneskaupstaður og Íþróttabandalag Akraness hafa í sameiningu látið framleiða fjölnota poka til þess að gefa íbúum á Akranesi. Fjölnota pokarnir sem um ræðir eru gulir að lit og merktir með skjaldarmerki Akraneskaupstaðar og merki ÍA ásamt gildum þeirra. Fyrstu pokarnir voru afhentir í gær til Sævars Freys Þráinsson bæjarstjóra og Helgu Sjafnar Jóhannesdóttur formanns ÍA. „Með […]
Myndarlegur stuðningur Skagans og Þorgeirs & Ellerts til ÍA
Fyrirtækin Skaginn hf., Þorgeir & Ellert hf. og 3X Technology ehf. hafa fyrir hönd starfsmanna sinna ákveðið að stuðla að bættum gæðum og faglegri vinnu við barna- og unglingastarf íþróttahreyfinga í heimabyggð. Stuðningurinn er veittur í nafni starfsmanna fyrirtækjanna og er ætlað að bæta barna- og unglingastarf íþróttahreyfinganna árið 2018 með sérstakri áherslu á forvarnargildi íþróttaiðkunar. […]
Styrkir vegna íþróttamála
Akraneskaupstaður veitir árlega styrki vegna menningar-, íþrótta- og atvinnumála. Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir fyrir árið 2018 og er umsóknarfrestur til og með 17. desember nk. Aðildarfélög ÍA eru hvött til að nýta sér þessa styrki en sótt er um á vef Akraneskaupstaðar https://www.akranes.is/is/frettir/opnad-fyrir-umsoknir-i-styrktarsjod-menningar-ithrotta-og-atvinnumala
Jákvæð samskipti við börn og unglinga á íþróttaæfingum
Mánudaginn 20. nóvember kl. 20:00 verður erindi fyrir þjálfara allra aðildarfélaga ÍA. Pálmar Ragnarsson fjallar um aðferðir í jákvæðum samskiptum við börn og unglinga á íþróttaæfingum sem vakið hafa mikla athygli. Lögð er áhersla á góðar móttökur, að öll börn upplifi sem þau skipti jafn miklu máli í hópnum, hvatningu og aðferðir við að hrósa, […]
Flott mæting á fyrirlestur Vöndu
Þriðjudaginn 31. október mættu um 120 manns til að hlusta á erindi Vöndu Sigurgeirsdóttur um hvernig í íþróttafólkið okkar geti bætt árangur sinn í íþróttum með notkun sálrænna aðferða. Hún kom einnig inn á mikilvægi jákvæðra leiðtoga, bæði í íþróttum en einnig tengt öðrum þáttum í lífi okkar. Mikil ánægja var með erindi Vöndu og […]
Láttu sjá þig!
Nú í skammdeginu er mikilvægt að gangandi, hjólandi og hlaupandi vegfarendur séu vel sjáanlegir í umferðinni. Það er hægt að gera á ýmsan hátt, einfaldast er að bera endurskinsmerki og eru foreldarar hvattir til að skoða fatnað barna sinna og athuga hvort endurskin frá þeim er nægjanlegt. Hlauparar og hjólreiðamenn eru hvattir til að nota […]