Bæklingur um íþróttir og átröskun
Út er kominn bæklingur á vegum ÍSÍ um íþróttir og átröskun en um er að ræða endurnýjun á bæklingi sem gefinn var út af ÍSÍ árið 1999. Höfundur bæklingsins er Petra Lind Sigurðardóttir sálfræðingur. Hægt er að nálgast bæklinginn á heimasíðu ÍSÍ á slóðunum http://www.isi.is/fraedsla/baeklingar/ og http://www.isi.is/utgafa/fraedslubaeklingar-isi/ eða í prentaðri útgáfu á skrifstofu ÍSÍ.
Frjálsar íþróttir á Skaganum

Skagafréttir litu við á frjálsíþróttaæfingu í Akraneshöllinni en UMF Skipaskagi hefur verið að koma af stað æfigum undir stjórn Ómars Ólafssonar. Mikið fjör í frjálsum í Akraneshöllinni

Lífshlaupið verður ræst í tíunda sinn í dag, miðvikudaginn 1. febrúar. Markmið Lífshlaupsins er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig og huga að sinni hreyfingu í frítíma, við vinnu, í skóla og við val á ferðamáta. Lífshlaupið – landskeppni í hreyfingu höfðar til allra landsmanna og gefst þátttakendum kostur á að taka þátt […]
Hadegisfundur um viðbrögð við samskiptavandamálum
Þriðjudaginn 24. janúar kl.12 mun ÍSÍ standa fyrir hádegisfundi í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar, en þar mun Björg Jónsdóttir frá Erindi segja frá tilboði sem íþróttafélögum stendur til boða ef upp koma samskiptavandamál eins og eineltismál. Erindi býður upp á ókeypis ráðgjöf og fræðslu og aðstoð við gerð eineltisáætlunar fyrir íþróttafélög. Með Björgu á fundinum verður Dagný […]
Stefán Bjarnason 100 ára
Stefán Bjarnason fagnaði 100 ára afmæli sínu í dag, þann 18. janúar 2017. Stefán var einn af hvatamönnum þess að fimleikar væru stundaðar á Akranesi og hefur unnið ötult og óeigingjarnt starf fyrir íþróttahreyfinguna á Akranesi um langt árabil. Stefán hlaut Gullmerki ÍA árið 1976 fyrir störf sín fyrir íþróttabandalagið. Íþróttafulltrúi ÍA heimsótti Stefán í […]
Fréttabréf ÍA komið út

Fyrsta tölublað fréttabréfs ÍA 2017 er komið út. Það má lesa hér
Áhugaverðar ráðstefnur
Í tengslum við WOW Reykjavik International Games 2017 standa Íþróttabandalag Reykjavíkur og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands fyrir tveimur ráðstefnum um íþróttatengd málefni í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. Sex erlendir fyrirlesarar munu flytja áhugaverð erindi á ensku. Fyrri ráðstefnan verður 26. janúar kl.17:30-20:30 og ber hún yfirskriftina Lyfjamál í íþróttum. Fjallað verður um hvað íþróttafólk […]
Vorfjarnám í þjálfaramenntun
Vorfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 6. febrúar nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá […]
Valdís Þóra er íþróttamaður Akraness 2016

Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, var í kvöld kjörinn íþróttamaður Akraness 2016. Þetta er í fimmta sinn sem Valdís Þóra er efst í þessu kjöri en hún varð fjórum sinnum í röð íþróttamaður ársins á Akranesi á árunum 2007-2010. Sundmaðurinn Ágúst Júlíusson varð annar í kjörinu og Einar Örn Guðnason kraftlyftingamaður varð þriðji. Í […]
Íþróttamaður Akraness í beinni
Kjör íþróttamanns Akraness verður í beinni á ÍA TV https://www.youtube.com/channel/UCnQHvY_UsVTOWKUfy0bKFug/featured