ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Áhugaverðar ráðstefnur

Áhugaverðar ráðstefnur

17/01/17

#2D2D33

Í tengslum við WOW Reykjavik International Games 2017 standa Íþróttabandalag Reykjavíkur og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands fyrir tveimur ráðstefnum um íþróttatengd málefni í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. Sex erlendir fyrirlesarar munu flytja áhugaverð erindi á ensku.

Fyrri ráðstefnan verður 26. janúar kl.17:30-20:30 og ber hún yfirskriftina Lyfjamál í íþróttum. Fjallað verður um hvað íþróttafólk þarf að hafa í huga þegar það neytir fæðubótarefna, þekktur hjólreiðamaður segir frá reynslunni við að falla á lyfjaprófi og rannsóknarblaðamaðurinn sem kom upp um lyfjasvindl Rússa flytur áhugavert erindi.

Seinni ráðstefnan fjallar um góða stjórnunarhætti og fer fram 2. febrúar kl.17:30-20:30. Þar munu þrír reyndir stjórnendur úr íþróttahreyfingunni sem koma frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Danmörku flytja fræðandi erindi um sína stjórnunarhætti. Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa gert miklar breytingar á skipulagi sinna íþróttasambanda og náð mjög góðum árangri í kjölfarið.

Verðið á hvora ráðstefnu er 4.900 krónur og er kvöldverður innifalinn. Ef báðar ráðstefnur eru keyptar í einu er verðið 8.900 krónur og fylgir þá með 3.000 króna gjafabréf sem gildir sem greiðsla uppí WOW Northern Lights Run. Hér á heimasíðu leikanna má finna nánari upplýsingar og þar er einnig hægt að skrá sig: http://rig.is/index.php/radstefna. Skráning verður opin þangað til daginn fyrir hvora ráðstefnu nema uppselt verði fyrir þann tíma.

Lyfjamál í íþróttum: https://www.facebook.com/events/1044026159075980/

Góðir stjórnunarhættir:  https://www.facebook.com/events/377907002584534/

Edit Content
Edit Content
Edit Content