Jólastund á Jaðarsbökkum

[et_pb_section admin_label=”section”][et_pb_row admin_label=”row”][et_pb_column type=”4_4″][et_pb_text admin_label=”Text”] Minnum á að Sundfélag Akraness, Akraneskaupstaður og ÍA bjóða upp á aðventustund á pottasvæðinu á Jaðarsbökkum föstudaginn 22. des. frá 17:30 – 18:30 Boðið verður upp á jólakakó og mun sundfélagsfólk sjá um lifandi jólatónlist. Allir velkomnir! [/et_pb_text][/et_pb_column][/et_pb_row][/et_pb_section]

Íbúar á Akranesi fá fjölnota poka að gjöf

Akraneskaupstaður og Íþróttabandalag Akraness hafa í sameiningu látið framleiða fjölnota poka til þess að gefa íbúum á Akranesi. Fjölnota pokarnir sem um ræðir eru gulir að lit og merktir með skjaldarmerki Akraneskaupstaðar og merki ÍA ásamt gildum þeirra. Fyrstu pokarnir voru afhentir í gær til Sævars Freys Þráinsson bæjarstjóra og Helgu Sjafnar Jóhannesdóttur formanns ÍA. „Með […]

Myndarlegur stuðningur Skagans og Þorgeirs & Ellerts til ÍA

Fyrirtækin Skaginn hf., Þorgeir & Ellert hf. og 3X Technology ehf. hafa fyrir hönd starfsmanna sinna ákveðið að stuðla að bættum gæðum og faglegri vinnu við barna- og unglingastarf íþróttahreyfinga í heimabyggð. Stuðningurinn er veittur í nafni starfsmanna fyrirtækjanna og er ætlað að bæta barna- og unglingastarf íþróttahreyfinganna árið 2018 með sérstakri áherslu á forvarnargildi íþróttaiðkunar. […]

Styrkir vegna íþróttamála

Akraneskaupstaður veitir árlega styrki vegna menningar-, íþrótta- og atvinnumála. Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir fyrir árið 2018 og er umsóknarfrestur til og með 17. desember nk. Aðildarfélög ÍA eru hvött til að nýta sér þessa styrki en sótt er um á vef Akraneskaupstaðar https://www.akranes.is/is/frettir/opnad-fyrir-umsoknir-i-styrktarsjod-menningar-ithrotta-og-atvinnumala  

Jákvæð samskipti við börn og unglinga á íþróttaæfingum

Mánudaginn 20. nóvember kl. 20:00 verður erindi fyrir þjálfara allra aðildarfélaga ÍA. Pálmar Ragnarsson fjallar um aðferðir í jákvæðum samskiptum við börn og unglinga á íþróttaæfingum sem vakið hafa mikla athygli. Lögð er áhersla á góðar móttökur, að öll börn upplifi sem þau skipti jafn miklu máli í hópnum, hvatningu og aðferðir við að hrósa, […]

Flott mæting á fyrirlestur Vöndu

Þriðjudaginn 31. október mættu um 120 manns til að hlusta á erindi Vöndu Sigurgeirsdóttur um hvernig í íþróttafólkið okkar geti bætt árangur sinn í íþróttum með notkun sálrænna aðferða. Hún kom einnig inn á mikilvægi jákvæðra leiðtoga, bæði í íþróttum en einnig tengt öðrum þáttum í lífi okkar. Mikil ánægja var með erindi Vöndu og […]

Láttu sjá þig!

Nú í skammdeginu er mikilvægt að gangandi, hjólandi og hlaupandi vegfarendur séu vel sjáanlegir í umferðinni. Það er hægt að gera á ýmsan hátt, einfaldast er að bera endurskinsmerki og eru foreldarar hvattir til að skoða fatnað barna sinna og athuga hvort endurskin frá þeim er nægjanlegt.  Hlauparar og hjólreiðamenn eru hvattir til að nota […]

Viltu æfa frjálsar íþróttir?

Æfingar á vegum UMF Skipaskaga byrja 11. október og fara æfingarnar fram í Akraneshöllinni alla miðvikudaga kl. 17:30-18:30. Skráning fer fram á staðnum og eru æfingarnar opnar iðkendum á öllum aldri. Þjálfari er: Ingibjörg Brynjólfsdóttir   Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að æfa frjálsar íþrottir að mæta. Ungmennafélagið Skipaskagi

Þjálfarastyrkir ÍSÍ.

Stjórn Verkefnasjóðs ÍSÍ auglýsir hér með eftir umsóknum um þjálfarastyrki ÍSÍ. Þjálfarastyrkir ÍSÍ eru veittir íþróttaþjálfurum sem sækja sér menntun erlendis í formi námskeiða eða ráðstefna og bæta þekkingu sína í þjálfun, sem mun nýtast íþróttahreyfingunni á Íslandi. Umsóknarfrestur er til 16. október og er upphæð hvers styrkjar að hámarki 100.000 krónur. Umsóknum skal skila […]

Veistu hvernig best er að undirbúa sig andlega? – Erindi um mikilvægi sálræna þáttarins í íþróttum 

[et_pb_section admin_label=”section”][et_pb_row admin_label=”row”][et_pb_column type=”4_4″][et_pb_text admin_label=”Text” background_layout=”light” text_orientation=”left” use_border_color=”off” border_color=”#ffffff” border_style=”solid”] Þriðjudaginn 31. október kl. 20:00 að Jaðarsbökkum fjallar Vanda Sigurgeirsdóttir fyrrverandi knattspyrnuþjálfari og landsliðskona um mikilvægi sálræna þáttarins í íþróttum og hvernig íþróttafólk getur bætt árangur með notkun sálrænna aðferða. Vanda fjallar einnig um mikilvægi jákvæðra leiðtogaeiginleika íþróttafólks. Fyrirlesturinn byggir á blöndu af fræðslu og góðum […]