Kvennahlaupið 2018

102 þátttakendur hlupu í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ á Akranesi í gær, þann 2. júní í skýjuðu sumarveðri. Viðburðurinn á Akranesi var skipulagður af ÍA og fékk Íþróttabandalagið til liðs við sig öflugan hóp iðkenda og foreldra úr 3. flokki kvenna í knattspyrnu til að sjá um framkvæmdina. Marella Steinsdóttir formaður ÍA ræsti hlaupið kl. 11:00 […]
Frábær þátttaka í Kvennahlaupinu á Höfða
Alls 65 þátttakendur hlupu í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ á Höfða þann 31. maí sl. Að venju var glatt á hjalla hjá þátttakendum á Höfða og í lok hlaups fengu allir viðurkenningu og hressingu í boði ÍA. Á Facebook-síðu ÍA má sjá myndir frá hlaupinu sem Hildur Karen tók https://www.facebook.com/media/set/?set=a.2164741213812588.1073741835.1961688967451148&type=1&l=1d67ff28b3
Sumarfjarnám 2018, þjálfaramenntun 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ
Sumarfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 18. júní nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni. Nám allra stiga er allt í […]
ÍA tekur þátt í Hreyfiviku!

ÍA og aðildarfélög þess eru sannarlega að taka Hreyfivikuna með trompi. Nú þegar eru komnir 20 viðburðir á Skaganum. Sjá nánar á http://iceland.moveweek.eu/events/2018/Akranes/ og https://www.facebook.com/Hreyfivika-%C3%A1-Akranesi-183411092186382/?ref=br_rs
Kvennahlaupið verður 2. júní

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður á Akranesi 2. júní og verður hlaupið frá Akratorgi kl. 11:00. Vegalengdir sem eru í boði eru 2 km. og 5 km. Forsala í íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum og á Akratorgi að morgni hlaupadags. Þátttökugjald fyrir 12 ára og yngri er 1:000 kr. og fyrir 13 ára og eldri er gjaldið 2.000 kr. Kvennahlaupsbolur fylgir þátttökugjaldi og einnig […]
Opinn kynningarfundur um afreksíþróttasvið FVA

Opinn kynningarfundur um afreksíþróttasvið FVA verður mánudaginn 28. maí kl. 20:15 í Hátíðarsal ÍA á Jaðarsbökkum. Allir velkomnir, einkum iðkendur sem eru að klára 10. bekk og forráðamenn þeirra. Kynnt verða helstu atriði varðandi afreksíþróttasviðið. Allar nánari upplýsingar veitir Helena Ólafsdóttir verkefnisstjóri, netfang: helenao@fva.is sími 848 1498.
Hvernig höldum við gleðinni í íþróttum á tímum afreksmennsku?
Hvernig er hægt að tryggja áfram félagslegt og uppeldislegt gildi íþrótta fyrir börn og ungmenni og stuðla um leið að áframhaldandi góðum árangri íslenskra íþróttamanna? Leitað verður svara við þessari spurningu á sjötta og síðasta fundinum í fundaröð Háskóla Íslands Háskólinn og samfélagið – Best fyrir börnin. Fundurinn fer fram mánudaginn 28. maí kl. 12-13.15 í Hátíðasal […]
Sumarnámskeið 2018

Það verða fjölmörg sumarnámskeið í boði á Akranesi í sumar. Upplýsinagar um þau er að finna á sérstökum sumarnámskeiðavef Akraneskaupstaðar og skráning fer fram í Nóra.
Undirbúningur fyrir langhlaup – í boði ÍA

Sunnudaginn 6. maí mun Sigurjón Ernir fara yfir undirbúning fyrir keppnishlaup, 10-21,1 og 42,2 km. Í fyrirlestrinum mun Sigurjón fara yfir mikilvæg atriði fyrir keppnishlaup á borð við: – Æfingaráætlun – Næring fyrir, yfir og eftir hlaup – Hlaupabúnaður og stuðningsvörur – Fyrirbygging og meðhöndlun meiðsla – Styrktarþjálfun með hlaupum – Fleiri atriði sem gott […]
Reiðhöll verður byggð á Æðarodda
Tekið af Skessuhorn.is Í dag var skrifað undir samning um byggingu nýrrar reiðhallar á svæði hestamannafélagsins Dreyra á Æðarodda við Akranes. Félagið er eitt fárra hestamannafélaga á landinu sem enn eru án reiðhallar eða annarrar heilsársaðstöðu til tamningar og þjálfunar. Akraneskaupstaður verður eigandi hússins, en það verður byggt fyrir um sextíu milljóna króna framlagi frá […]