ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Sumarfjarnám 2018, þjálfaramenntun 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ

Sumarfjarnám 2018, þjálfaramenntun 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ

06/06/18

#2D2D33

Sumarfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 18. júní nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.
Nám allra stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda, almennan hluta hjá ÍSÍ og sérgreinahluta hjá sérsamböndum ÍSÍ. Þátttökugjald á 1. stig er kr. 30.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 28.000.- og kr. 40.000.- á 3. stig. öll námskeiðsgögn eru innifalin.
Skráning er rafræn og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 15. júní. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi. Til þátttöku á 2. stigi þarf að hafa lokið 1. stigi, hafa gilt skyndihjálparnámskeið og 6 mánaða starfsreynslu sem þjálfari. Til þátttöku á 3. stigi þarf að hafa lokið 2. stigi eða sambærilegu námi, hafa gilt skyndihjálparnámskeið og að hafa 18 mánaða starfsreynslu sem þjálfari.

Slóð á skráningu á öll stig í sumarfjarnámi þjálfaramenntunar ÍSÍ 2018:

http://isi.is/fraedsla/thjalfaramenntun-isi/skraning-i-thjalfaramenntun/

Allar nánari uppl. um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 514-4000 & 863-1399 eða á vidar@isi.is

Edit Content
Edit Content
Edit Content