ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Hvernig höldum við gleðinni í íþróttum á tímum afreksmennsku?

Hvernig höldum við gleðinni í íþróttum á tímum afreksmennsku?

24/05/18

#2D2D33

Hvernig er hægt að tryggja áfram félagslegt og uppeldislegt gildi íþrótta fyrir börn og ungmenni og stuðla um leið að áframhaldandi góðum árangri íslenskra íþróttamanna? Leitað verður svara við þessari spurningu á sjötta og síðasta fundinum í fundaröð Háskóla Íslands Háskólinn og samfélagið – Best fyrir börnin.

Fundurinn fer fram mánudaginn 28. maí kl. 12-13.15 í Hátíðasal Háskóla Íslands og erindi flytja þeir Viðar Halldórsson, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands, Gunnar Valgeirsson, prófessor við California State háskólann í Bandaríkjunum, og Stefán Arnarson, íþróttastjóri KR og þjálfari nýkrýndra Íslandsmeistara Fram í handknattleik kvenna. Streymt verður frá fundinum á Netinu.

Sterk félagsleg og uppeldisleg gildi í íþróttastarfinu, gríðargóður árangur íslensks íþróttafólks á alþjóðavísu og #metoo-byltingin gera það meðal annars að verkum að íþróttir á Íslandi standa á ákveðnum tímamótum. Hver þróun íþróttanna verður á komandi árum með hliðsjón af ofangreindum þáttum mun hafa mikil áhrif á upplifun og reynslu barna og ungmenna af íþróttastarfi í framtíðinni. Viðar Halldórsson mun í erindi sínu meðal annars fara yfir skipulag, áherslur og stöðuna almennt í íþróttastarfi á Íslandi. Hann mun einnig fjalla um þær stóru áskoranir sem íþróttastarfið stendur frammi fyrir og þau tækifæri sem í þeim felast. Gunnar Valgeirsson fjallar í framhaldinu um skipulag íþrótta í Bandaríkjunum til samanburðar við Ísland og Stefán Arnarson mun segja frá því hvernig hann samræmir uppeldis- og afreksáherslur í þjálfun sinni.

Markmiðið með fundaröðinni Háskólinn og samfélagið – Best fyrir börnin er að dýpka sýn bæði almennings og fagfólks á vandamál og lausnir á mikilvægum samfélagslegum þáttum og styðja fjölskyldur og samfélag í því að tryggja velferð barna og ungmenna.

Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Hér er viðburður vegna fundarins á Facebook:

https://www.facebook.com/events/233643153884007/

Edit Content
Edit Content
Edit Content