Skagamenn unnu mikilvægan sigur á KA

Meistaraflokkur karla mætti KA í átjándu umferð Íslandsmótsins sem fram fór við frekar erfiðar aðstæður á Norðurálsvelli en hávaðarok var

Leikdagur á Norðurálsvelli!

Í dag, sunnudaginn 10. september, taka strákarnir okkar í meistaraflokki karla á móti KA í Pepsideildinni. Leikurinn hefst kl. 17:00.

Opna Samhentir og Vörumerking: Seinkun á rástímum vegna næturfrost

Kylfingar athugið: vegna næturfrost verður seinkun á ræsingu í Opna Samhentir og Vörumerking og færast rástímar því til. Vinsamlega kynnið ykkur breytta rástíma á golf.is
Vallarstarfsmenn þurftu í morgunsárið að bíða átekta til slá flatir og önnur svæði vallarins og munu hefja störf um leið og færi gefst.

Opna Samhentir og Vörumerking, styrktarmót fyrir afreksstarf Leynis – úrslit

Opna Samhentir og Vörumerking, styrktarmót fyrir afreksstarf Leynis var haldið laugardaginn 9.september á Garðavelli og tóku þátt 56 kylfingar.
Keppnisfyrirkomulag var punktakeppni með forgjöf og höggleikur án forgjafar. Helstu úrslit voru eftirfarandi:
Punktakeppni með forgjöf
1. Hans Adolf Hjartarson GR, 40 punktar
2. Vilhjálmur E Birgisson GL, 39 punktar
3. Ragnheiður Jónasdóttir GL, 38 punktar
4. Rúnar Freyr Ágústsson GL, 37 punktar (betri á síðustu sex)
5. Jóhann Þór Sigurðsson GL, 37 punktar (betri á seinni níu)
6. Bjarni Borgar Jóhannsson GL, 37 punktar (betri á seinni níu)
7. Hjörtur Ingþórsson GR, 37 punktar
8. Guðjón Viðar Guðjónsson GL, 36 punktar (betri á seinni níu)
9. Gestur Sveinbjörnsson GL, 36 punktar (betri á seinni níu)
10. Gunnar Jóhann Viðarsson GL, 36 punktar
Höggleikur án forgjafar (besta skor)
1.sæti Davíð Búason, 73 högg
2.sæti Hróðmar Halldórsson, 76 högg
3.sæti Guðmundur Hreiðarsson, 77 högg (betri á seinni níu)
Skilmálar mótanefndar voru að ekki er hægt að vinna til verðlauna í báðum flokkum.
Lengsta „drive“ á 13.braut Engilbert Runólfsson GL
Nándarmælingar
3.hola Rúnar S.Guðjónsson GK 1.25m
8.hola Skarphéðinn Elvar Skarphéðinsson GMS 1.69m
14.hola Hjörtur Ingþórsson GR 4.46m
18.hola Einar Jónsson GL 2.28m
Vinnningshafar geta sótt vinninga í afgreiðslu GL frá og með mánudeginum 11. september.
Golfklúbburinn Leynir þakkar kylfingum þátttökuna, og Samhentum og Vörumerkingu og öllum styrktaraðilum mótsins fyrir stuðningin við mótið með vinningum.

ÍA-Sindri á Norðurálsvelli

Á morgun, laugardaginn 9. september, fer fram lokaumferð 1. deildar kvenna þetta sumarið. ÍA á heimaleik gegn Sindra frá Hornafirði

Leynir og Lögheimili gera með sér samstarfssamning

Golfklúbburinn Leynir og Lögheimili eignamiðlun ehf. gerðu mér sér samstarfssamning nýlega.
Samstarfssamningurinn felur í sér stuðning við starf GL og er auglýsing við aðkomu og 1.teig hluti af samkomulaginu. Golfklúbburinn Leynir færir Lögheimili kærar þakkir fyrir.
Að sögn Heimis Bergmanns hlakkar Lögheimili Eignamiðlun til að þjónusta Akurnesingum í fasteignaviðskiptum í framtíðinni.
Á mynd má sjá Guðmund Sigvaldason framkvæmdastjóra Leynis og Heimir Bergmann framkvæmdastjóra Lögheimili eignamiðlun handsala samkomulagið.

Stórglæsilegt styrktarmót í boði Samhentir og Vörumerking

Stórglæsilegt opið styrktarmót á Garðavelli laugardaginn 9.september í boði Samhentir og Vörumerking. Mótið er haldið til styrktar öflugu afreksstarfi Leynis.
Leikfyrirkomulag er 18 holu punktakeppni með forgjöf og einnig höggleikur án forgjafar (besta skor).
Stórglæsileg verðlaun í boði:
1.-10.sæti í punktakeppni með forgjöf
1.-3.sæti í höggleik án forgjafar (besta skor)
Nándarverðlaun á par 3 holum
Lengsta “drive” á 13.braut
Mótsgjald kr. 4.500- og skráning á golf.is