Ný æfingatafla fyrir veturinn
Þessi æfingatafla tekur gildi í dag 4.september. Nánar á síðum yngri flokka.
Skagastelpur unnu góðan útisigur á Víking Ó
Meistaraflokkur kvenna mætti Víking Ó í 17. umferð Íslandsmótsins sem fram fór við ágætar aðstæður á Ólafsvíkurvelli. Víkingur hóf leikinn
Leikdagur í 1. deild kvenna
Í dag, laugardaginn 2. september, gera stelpurnar okkar í meistaraflokki kvenna sér ferð til Ólafsvíkur þar sem þær mæta Víkingi
Skagamaður valinn á landsliðsæfingar
Þann 8. og 9. september næstkomandi fara fram æfingar hjá U17 landsliði karla sem undirbýr nú þátttöku í undankeppni EM2018
Árgangur 59 færði Leyni gjöf
Árgangur 59 af Akranesi færði Golfklúbbnum Leyni nýlega glæsilega gjöf til minninga um látna skólafélaga.
Árgangur 59 hittist reglulega og heldur góðu sambandi með ýmsum hætti en árlega er haldið golfmót og einnig á fimm ára fresti er haldið hefðbundið árgangsmót.
Gjöfin inniheldur garðbekk úr endurunnu plasti og mun hann verða staðsettur við golfskála Leynis um ókomna tíð og mun án efa sóma sér vel.
Á mynd má sjá nokkur skólasyskin úr árgang 59 við afhendingu á garðbekknum og þegar golfmót þessa árs var spilað á Garðavelli. Á mynd er einnig Kristrún Sigurbjörnsdóttir ekkja Daða Halldórssonar eins skólabróður úr árgang 59.
Sumarlok – útsala á fatnaði merktum GL
Golfverslun Leynis hefur boðið upp á gæða golf fatnað í sumar frá FJ (FootJoy) og nú býðst félagsmönnum að kaupa fatnað merktan klúbbnum á sannkölluðum kostakjörum og er um algjöra útsölu að ræða nú í sumarlok.
Fatnaðurinn sem um ræðir er fyrir börn, konur og karla og erum að ræða örfá eintök í hverri stærð. Fatnaðurinn samanstendur af sport peysum og póló bolum.
Fyrstir koma – fyrstir fá – takmarkað magn og stærðir.
Þjálfarar og æfingatímar yngri flokka haustið 2017
Hér fylgja upplýsingar um þjálfara og æfingatíma 2. – 8. flokks hjá Knattspyrnufélagi ÍA í vetur. Ný æfingatafla tekur gildi
Góður árangur hjá unglingum GL
Íslandsbanka- og Áskorendamótaröð GSÍ lauk s.l. helgi og hafa unglingar frá GL verið dugleg að sækja mótaraðir sumarsins. Árangur unglingana hefur verið góður og oftar en ekki unnið til verðlauna.
Síðastliðna helgi endaði Björn Viktor Viktorsson í 2.sæti í flokki 14 ára og yngri stráka á Íslandsbankamótaröðinni. Björn Viktor endaði jafnframt í 3.sæti stigalistans fyrir sumarið í sínum flokk.
Þorgeir Örn Bjarkason vann 18 holu Áskorendamót stráka 14 ára og yngri og í 2.sæti varð Gabríel Þór Þórðarsson. Í flokki stelpna vann Kristín Vala Jónsdóttir.
Marinó Ísak Dagsson vann 9 holu Áskorendamót pilta 10 ára og yngri og í 3.sæti varð Bragi Friðrik Bjarnason.
Golfklúbburinn Leynir óskar börnum og unglingum úr röðum klúbbsins til hamingju með árangurinn sem hefur verið til fyrirmyndar í sumar.
Skagamenn töpuðu fyrir Breiðablik í fallbaráttuleik
Meistaraflokkur karla mætti Breiðablik í sautjándu umferð Íslandsmótsins sem fram fór við góðar aðstæður á Kópavogsvelli. Það er skemmst frá
Pepsideild karla: Breiðablik – ÍA – frí rútuferð á leikinn
Á morgun, sunnudaginn 27. ágúst, heimsækja strákarnir okkar í meistaraflokki karla Breiðablik í Kópavoginn í 17. umferð Pepsideildar karla. Leikurinn