Reiðnámskeið 18. mars með Daníel Jónssyni.

Hinn landsþekkti  knapi, Daníel Jónsson verður með reiðnámskeið í reiðhöllinni á Litlu-Fellsöxl laugardaginn 18. mars n.k. Námskeiðið hentar þeim vel sem  að stefna á gæðingakeppni og sýningu kynbótahrossa, og lika fyrir alla áhugasama sem vilja bæta sig og hestinn sinn. Þetta eru einkatímar sem kosta 10 þúsund krónur. Einnig er mögulegt fyrir 2 að vera […]

Framhaldsaðalfundur Dreyra 14. febrúar

Framhaldsaðalfundur Dreyra verður  þriðjudaginn 14. febrúar 2017 Fundurinn hefst kl: 20 í félagsheimilinu á Æðarodda. -Dagskrá  framhaldsaðalfundar  verður  skv. 7. grein laga félagsins og ársreikningur 2016 lagður fram til samþykktar. -Tillaga að lagabreytingu á 9. grein laga um starfsnefndir og nefndir . – (orðið kynbótanefnd tekið út) 9. grein Starfsnefndir og nefndir:  Stjórn félagsins er […]

Jakob Svavar er íþróttamaður Dreyra og Ester Þóra valin efnilegust.

Aðalfundur  Hestamannafélagsins Dreyra var haldinn 30. nóvember s.l. í félagsheimili hestamanna á Æðarodda. Á fundinum var farið yfir helstu atriði í starfi félagsins, breytingar á lögum félagsins samþykktar,  kosið í stjórn og nefndir ásamt hefðbundnum aðalfundarliðum og að sjálfsögðu rætt um reiðhallarmál. Ágæt mæting var á fundinn og ánægjulegt að sjá hversu margir láta sig […]

Gamlársdagur á Æðarodda. Lokasmölun úr flóanum og heitt kakó :-)

31. desember, Gamlársdagur- Lokasmölun hrossa úr flóanum Stefnt er að því að byrja smölun kl 12 og vera komin með hrossin í Æðarodda kl 13. Félagsheimilið verður opið milli 12 – 14 og í boði heitt kakó og vöfflur með rjóma. (Verð: frjáls framlög í krús) Allir velkomnir til að fylgjast með hrossahópnum koma niður […]

Aðalfundur Dreyra er 30. nóvember í Æðarodda.

Aðalfundur  Hestamannafélagsins Dreyra verður haldinn miðvikudaginn 30. nóvember  n.k, kl 20 í Æðarodda. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt gildandi lögum félagsins. Stjórn mun leggja fram  drög að breytingum á lögum félagsins. Tillögur að breytingum má finna hér hægra megin á síðunni undir “Lög Dreyra”. Nýir félagar velkomnir. Félagsmenn eru hvattir til að skrá sig á netfangalista félagsins […]

Jakob Svavar Sigurðsson gæðingaknapi ársins.

Dreyrafélaginn Jakob Svavar Sigurðsson var valinn gæðingaknapi ársins á uppskeruhátíð Landssambands Hestamannafélaga s.l laugardag. Jakob var tilnefndur í þremur flokkum af  fjórum, þ.e sem gæðingaknapi, kynbótaknapi og íþróttaknapi ársins. Einnig kom hann til greina sem Knapi ársins. Glæsilegur árangur hjá Jakobi sem átti glæsilegt keppnisár. Í umsögn valnefndar segir: ” Gæðingaknapi ársins er Jakob Svavar […]

Landsmót á Hólum- góður árangur Dreyrafélaga

Keppendum Dreyra gekk ágætlega á nýafstöðnu landsmóti á Hólum í Hjaltadal. Í barnaflokki kepptu Unndís Ída á Dömu frá Stakkhamri og náðu einkunni 7.98 og Ester Þóra Viðarsdóttir á Ými frá Garðabæ með einkunina 8.27 og voru aðeins 0.08 frá því að komast í milliriðil. Vel gert hjá stelpunum á þeirra fyrsta stórmóti. Í ungmennaflokki […]

Landsmótið á Hólum í Skagafirði að hefjast

Á morgun hefst landsmót hestamanna. Mótið er haldið á Hólum í Hjaltadal en 50 ár eru síðan þar var síðast haldið landsmót. Á landsmótinu er keppt í öllum greinum gæðingakeppni, tölti og skeiði svo er einnig keppni kynbótahrossa. Mótið er alla vikuna og lýkur næsta sunnudag. Haldið var sérstakt úrtökumót í Borgarnesi fyrir 2 vikum […]

Gæðingakeppni Dreyra 5. júní 2016

Gæðingakeppni Dreyra verður haldin í Æðarodda sunnudaginn 5. júní n.k. Keppt verður í barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki, A og B flokki gæðinga. Skráning fer fram í gegnum Sportfeng. Skráningargjöld eru kr. 3.500 í A – og B flokk og ungmennaflokk,unglingaflokki, og 1500 fyrir börn . Dagskrá auglýst síðar. kv Mótarnefnd Dreyra