Landsliðsæfingar framundan

Helgina 20.-22. október fara fram landsliðsæfingar bæði hjá U16 ára og U15 ára landsliðum karla. Við erum stolt af því

Haustfundur uppeldissviðs 2017

Í gærkvöldi, 12. október, var haldinn haustfundur Uppeldissviðs KFÍA í sal Grundaskóla. Um það bil 150 manns sóttu fyrirlesturinn, að

Lið Magnúsar vann Bændaglímuna 2017

Bændaglíman fór fram s.l. laugardag 7. október og var þar formlegu mótahaldi sumarsins lokað.
Í ár tóku þátt 32 félagsmenn GL og voru bræðurnir Einar og Magnús Brandssynir bændur. Lið þeirra áttust við í hörkukeppni en leikar fóru þó þannig að lið Magnúsar vann.
Í mótslok gerðu kylfingar upp úrslitin og snæddu kjöt- og sveppasúpu og renndu niður með léttum drykkjum á 19.holunni.
Bændaglíman er ávallt síðasta mót sumarsins og vill mótanefnd GL þakka félagsmönnum kærlega fyrir sumarið og óskar þess að sjá sem flesta næsta sumar á golfvellinum.
Frekari tilkynningar um haustmót verða sendar um leið og þær liggja fyrir en undirbúningur er í gangi og taka þessi mót mið af veðri og vallaraðstæðum hverju sinni.

Opna GrasTec haustmótaröðin hefst laugardaginn 14.okt.

Opna GrasTec haustmótaröðin hefst n.k. laugardag 14. október á Garðavelli. Um er að ræða haustmót með sama fyrirkomulagi og undanfarin ár nema hvað nú verður mótaröðin opin fyrir alla áhugasama kylfinga og spilaðar 12 holur nú þegar Garðavöllur er með hverri vikunni að taka á sig meira og meira haust yfirbragð.
Keppnisfyrirkomulag
– Leikin verða fjögur golfmót á laugardögum frá og með 14. október til 4. nóvember á Garðavelli.
– Leiknar eru 12 holur í opnu golfmóti (9 holur til vara ef aðstæður gefa tilefni til).
– Áskilinn er réttur til að fær mót til sunnudags eða fella mót niður ef ástæður gefa tilefni til– slíkt yrði tilkynnt með minnst 3 klst fyrirvara á síðu GL á www.golf.is
– Karlar leik af gulum teigum og konur og karlar 65 ára og eldri af rauðum teigum.
– Hámarksforgjöf karla er 24 og 30 hjá konum.
– Leikið er í einum opnum flokki.
– Ræst er út af öllum teigum samtímis klukkan 10:00
– Skráning í mótin er á www.golf.is
– Keppnisgjald er 2.000 kr. í hvert mót.
Verðlaun og keppnisgjald
– Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin með forgjöf í hverju móti.
1) andvirði ca 25.000 kr.
2) andviðri ca 15.000 kr.
3) andvirði ca 10.000 kr.
– Nándarverðlaun í hverju móti.
– Í lok mótaraðarinnar verður Gjafabréf hjá GB Ferðum að andvirði 50.000 kr. dregið út úr nöfnum allra keppenda úr öllum mótunum.
Annað
– Golfskálinn opnar klukkan 9:00 á keppnisdegi
– Gott að mæta stundvíslega fyrir mót.
– Frítt uppáhelt kaffi fyrir keppendur.
– Bakkelsi og heit súpa í golfskála.
– Mótanefnd GL áskilur sér rétt til að fresta móti vegna ónógrar þátttöku eða veðurs.
– Leikmenn verða að hafa virka forgjöf til að geta unnið til verðlauna.
– Leikið er samkvæmt móta- og keppendareglum GSÍ nema annað komi fram.

Uppskeruhátíð LH – Dreyrafélagar með 4 tilnefningar.

Uppskeruhátíð hestamanna fer fram þann 28. október n.k á Reykjavík Hilton Nordica, Hátíðin er haldin af Landsambandi hestamanna og félagi hrossabænda. Nú eins og undanfarin ár eru bestu knapar og hrossaræktendur landsins verðlaunaðir fyrir frammistöðu sína á árinu. Verðlaunahafar á uppskeruhátíð 2016. Jakob var gæðingaknapi árins. Dreyrafélaginn og heimsmeistarinn í tölti, Jakob Svavar Sigurðsson er […]

Viltu æfa frjálsar íþróttir?

Æfingar á vegum UMF Skipaskaga byrja 11. október og fara æfingarnar fram í Akraneshöllinni alla miðvikudaga kl. 17:30-18:30. Skráning fer fram á staðnum og eru æfingarnar opnar iðkendum á öllum aldri. Þjálfari er: Ingibjörg Brynjólfsdóttir   Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að æfa frjálsar íþrottir að mæta. Ungmennafélagið Skipaskagi

ÍA byrjar tímabilið vel

Keppnistímabilið í klifri hófst um helgina með Haustfagnaði Klifurhússins en um tuttugu klifrarar frá ÍA tók þátt á mótinu. Í flokki krakka 11-12 ára sigraði Sylvía Þórðardóttir í stúlknaflokki og Hjalti Rafn Kristjánsson og Rúnar Sigurðsson höfnuðu í öðru og þriðja sæti. Brimrún Eir Óðinsdóttir keppti í 16-19 ára flokki og hafnaði í öðru sæti. […]

Lokahóf og shoot-out hjá barna og unglingastarfi GL

Lokahóf hjá barna og unglingastarfi Leynis fór fram sunnudaginn 1. október. Var byrjað á Shoot-out keppni í anda Einvígsins á Nesinu þar sem æfingahóparnir kepptu innbyrðis og síðan var loka einvígi þar sem sigurvegarar hvers æfingahóps öttu keppni í 4 manna úrslitum. Frábær þáttaka var í mótinu en 26 krakkar tóku þátt. Fyrirkomulagið er þannig að menn detta út ef þeir eru á lakasta skorinu á hverri holu, þannig að það reynir á þegar maður dettur út!
Í úrslitum voru: Kristín Vala, Marínó Ísak, Björn Viktor og Kári Kristvins og fór það svo að Björn Viktor sigraði eftir mikla baráttu þar sem fráært golf var leikið af allra hálfu. Til að mynda voru allir að reyna við fugl á fyrstu holu! Myndaðist skemmtileg stemming þar sem stór hópur af krökkum og foreldrum rölti með og bjó til enn meiri spennu í mótið. Sannarlega skemmtilegt mót sem vonandi er komið til að vera.
Að Shoot-out mótinu loknu tók við lokahóf í golfskála þar sem Steini vert var búinn að töfra fram dýrindis smárétti. Guðmundur framvæmdastjóri veitti verðlaun fyrir FootJoy-titleist mótaröðina sem fram fór í sumar. Það er mótaröð sem Íslensk Ameríska hefur styrkt dyggilega og leikin hefur verið frá upphafi sumars og fram á haust. Kann Barna og unglinganefnd GL ÍSAM bestu þakkir fyrir frábæran stuðing við barna og unglingastarf klúbbins.
Síðan voru veitt verðlaun til allra þeirra sem tóku þátt í GSÍ mótum sumarsins en það voru 31 keppendur frá GL í unginga mótum á vegum GSÍ í sumar. Sannarlega eftirtektarverður hópur sem hefur verið duglegur að æfa og keppa í sumar. Einnig voru veitt verðlaun fyrir mestu forgjafalækkun barna og unglinga í sumar en hjá strákum var Björn Viktor með 41% lækkun forgjafar og hjá stelpum var Kristín Vala með 39% lækkun.
Einnig voru veitt verðlaun fyrir árangur á Íslandsbankamótaröðinni og Áskorendamótaröð Íslandsbanka en þar hlutu þau Björn Viktor og Guðrún Nolan verðlaun fyrir árangur á Íslandsbankamótaröðinni sem og Kristín Vala og Gabríel Þór verðlaun fyrir góðan árangur á Áskorendamótaröð Íslandsbanka.
Að lokum voru Brellumeistarar GL krýndir en í ár voru það systkinin Kári og Klara Kristvinsbörn sem hlutu þau verðlaun fyrir frábær brellumyndbönd. Brellumeistarinn var skemmtileg keppni sem sett var á laggirnar í sumar en þar voru krakkarnir hvött til að mynda hópa um að taka upp brelluhögg og senda á Birgi Leif Íþróttastjóra sem skipaði dómnefndina. Virkilega skemmtileg nýjung sem þjappaði hópnum saman og jók á samheldni og viðveru á golfvelli sem og með kylfu í hönd heima við!
Barna og unglinganefnd og þjálfarar þakka fyrir viðburðaríkt og skemmtilegt sumar.