ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Sigrún spilaði sinn fyrsta landsleik í dag

Sigrún spilaði sinn fyrsta landsleik í dag

05/10/17

#2D2D33

Sigrún Eva Sigurðardóttir spilaði sinn fyrsta leik með landsliðinu U-17

U17 ára lið kvenna lék í dag annan leik sinn í undankeppni EM 2018, en mótherjar dagsins voru Svartfjallaland. Ísland vann leikinn 5-0 og er því öruggt í milliriðil.

Leikið er í Azerbaijan og hófst leikurinn klukkan 11:00 að íslenskum tíma.

Mörk Íslands skoruðu þær Karólína Jack, Hildur Þóra Hákonardóttir, Sveindís Jane Jónsdóttir og Clara Sigurðardóttir. Eitt markana var sjálfsmark.

Byrjunarlið Íslands í dag: 

Birta Guðlaugsdóttir

Kristjana R. Kristjánsdóttir Sigurz

Hildur Þóra Hákonardóttir

Karen María Sigurgeirsdóttir

Ísafold Þórhallsdóttir

Sigrún Eva Sigurðardóttir

Halldóra Birta Sigfúsdóttir

Kristín Erla Ó Johnson

Helena Ósk Hálfdánardóttir

Katla María Þórðardóttir

Karólína Jack

 

 

Sigrún Eva spilaði allann leikinn og stóð sig mjög vel.

Edit Content
Edit Content
Edit Content