Fimleikafélag ÍA býður upp á 12 vikna námskeið fyrir íþróttakrakka sem hefst þriðjudaginn 19. september Fimleikaþrek fyrir íþróttakrakka fædda 2010-2013 er frábært fyrir börn sem iðka aðrar íþróttir en fimleika. Áhersla er lögð á samhæfingu, snerpu, styrk, jafnvægi og liðleika. Farið er á fimleikaáhöld eins og stórt trampólín og fleira. Æfingar fara fram á þriðjudögum...