ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

FIMLEIKAR

Grunnhópar Fimleikafélags ÍA er fyrir alla iðkendur á aldrinum 4-8 ára. Kenndur er hreyfigrunnur þar sem áhersla er á hreyfifærni, samhæfingu, jafnvægi og fyrstu skref tekin í loftvitund á áhöldum (trampólín og dýnustökk).

Grunnhópana þjálfa reynslu miklir fimleika- og parkour þjálfarar. Að loknum grunnhópum hafa börn öðlast færni sem nýtist þeim hvort sem valið er að fara í fimleika eða parkour í framhaldinu.

Að loknum grunnhópum velja börn að fara ýmist í hópfimleika þar sem stefnt er að keppni, áhugafimleika þar sem skipulögð hreyfing og góður félagsskapur er í fyrirrúmi eða parkour þar sem iðkandi lærir að ferðast hratt á milli staða með fimleikaæfingum, stökkum og klifri.

Að loknum grunnhópum velja börn að fara ýmist í hópfimleika þar sem stefnt er að keppni, áhugafimleika þar sem skipulögð hreyfing og góður félagsskapur er í fyrirrúmi eða parkour þar sem iðkandi lærir að ferðast hratt á milli staða með fimleikaæfingum, stökkum og klifri.

Hópfimleikar: iðkendur 9 ára og eldri (stúlkur byrja í 3 bekk en drengir í 4 bekk sbr skipulag FSÍ). Iðkendur sem velja þessa leið stefna á keppni frá áramótum í 3 bekk. Unnið er eftir fimleikastiga þar sem erfiðleiki fer stigvaxandi eftir getu og aldri. Hópfimleikar eru hópíþrótt þar sem keppt er í 6-15 manna liðum á 2-6 mótum yfir árið. Keppt er í dýnustökkum, trampólínstökki og gólfæfingum.

 

Áhugafimleikar: iðkendur 9 ára og eldri (í boði eftir áramót í 3 bekk). Iðkendur sem vilja æfa án keppni en hafa möguleika á að taka þátt í sýningum og öðrum viðburðum. Unnið er eftir fimleikastiga þar sem erfiðleiki fer stigvaxandi eftir getu og aldri. Lögð er áherslu á góðan félagsskap og létt andrúmsloft. Áhugafimleikar eru frábær leið fyrir þá sem vilja æfa af minni ákefð eða með öðrum íþróttum.

Parkour: iðkendur 9 ára og eldri (4 bekkur+). Iðkendur sem velja þessa leið læra að ferðast hratt á milli staða í gegnum þrautabrautir og nýta hindranir á vegi sínum til þess að gera fimleikaæfingar, stökk og rúllur í bland við trampólín- og dýnustökk. Parkour er frjálsleg og skemmtileg íþrótt sem hentar öllum.

 

Fimleikafélag ÍA hefur unnið að því síðast liðin ár í að stækka iðkendahóp sinn og stefnir að því að vera fimleikafélag fyrir alla.
Við bjóðum upp á ýmis námskeið fyrir breiðan aldurshóp.
Sem dæmi má nefna:

Áhugafimleikar fyrir iðkendur 9 ára og eldri (í boði eftir áramót í 3 bekk). Iðkendur sem vilja æfa án keppni en hafa möguleika á að taka þátt í sýningum og öðrum viðburðum. Unnið er eftir fimleikastiga þar sem erfiðleiki fer stigvaxandi eftir getu og aldri. Lögð er áherslu á góðan félagsskap og létt andrúmsloft.
Áhugafimleikar eru frábær leið fyrir þá sem vilja æfa af minni ákefð eða með öðrum íþróttum.

Ungbarnafimleikar fyrir börn 6-15 mánaða
Íþróttaskólinn fyrir börn 1-4 ára
Fjölskyldu fimleikar fyrir foreldra og börn á sunnudögum
Fimleikaþrek fyrir íþróttakrakka sem er frábært fyrir börn sem iðka aðrar íþróttagreinar en fimleika
Fullorðinsfimleikar fyrir þá sem langar að prufa sig áfram í fimleikum á fullorðins aldri
Bandvefslosun fyrir 60 ára og eldri
Fimleika fyrir börn með fatlanir fyrir börn á grunnskólastigi

Námskeiðin okkar eru auglýst sérstaklega á heimasíðu félagsins.

Edit Content
Edit Content
Edit Content