Yfirþjálfari Fimleikafélags ÍA
Sími: 849-3031
Netfang: thordis@ia.is
6. flokkur kvk, 5. flokkur kvk, 3. flokkur, 2. flokkur, fimleikaþrek fyrir íþróttakrakka, Fullorðinsfimleikar, Bandvefslosun 60+
Meistaraflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur, Drengir Eldri.
Dansþjálfari, Meistaraflokkur, 1. flokkur, Íþróttaskóli og Ungbarafimleikar
Parkour þjálfari, P1, P2 og P3.
6. flokkur kvk, 3. flokkur, 2. flokkur (dans) og Fimleikanámskeið á Keppjárnsreykjum
4. flokkur, Áhugahópur 1 og 2
4 flokkur og Áhugahópur 3
6. flokkur kk, Drengir yngri, 3. flokkur
Íþróttaskóli og 5. flokkur kvk
8. flokkur
7. flokkur
7. flokkur, 8. flokkur – 4 ára fimleikar
Áhugahópur 1
6. flokkur kk, 6. flokkur kvk, 4. flokkur, 2. flokkur og Fimleikadrengir,
Meistaraflokkur, 1. flokkur, 5. flokkur, 6. flokkur kvk, Goldies
7. flokkur, 8. flokkur – 4 ára fimleikar.
4. flokkur, 8 flokkur – 4 ára fimleikar
Parkour 2, Parkour 3, 6. flokkur kk.
Íþróttaskóli
1. gr.
Félagið heitir Fimleikafélag Akraness, skammstafað FIMÍA.
2. gr.
Tilgangur félagsins er að iðka fimleika.
3. gr.
Úrsögn úr félaginu skal tilkynnt skriflega til stjórnar félagsins. Úrsögn skal tekin til greina ef viðkomandi er skuldlaus við félagið.
4. gr.
Árgjald félagsmanna skal ákveðið á aðalfundi.
5. gr.
Stjórn félagsins skipa fimm menn: Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi. Stjórnin skal kosin á aðalfundi félagsins og skal hver stjórnarmaður kosinn sérstaklega. Komi aðeins fram ein uppástunga til stjórnarstarfa, þá er sá sem er tilnefndur, sjálfkjörinn. Stjórnin er kosin til eins árs í senn. Séu atkvæði jöfn skal hlutkesti ráða. Kosnir skulu 2 menn í varastjórn.
6. gr.
Aðalfundur félagsins skal haldinn í mars ár hvert. Til fundarins skal boða með viku fyrirvara með auglýsingu. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
Kosinn fundarstjóri og fundarritari.
Skýrsla stjórnar.
Reikningar félagsins.
Kosning stjórnar og varastjórnar.
Kosning tveggja endurskoðenda.
Ákveðið árgjald félagsmanna.
Önnur mál.
Á fundinum ræður afl atkvæða í öllum málum, þó með þeim undantekningum, sem gerðar eru í lögum þessum. Rétt til setu á aðalfundi og atkvæðisrétt þar hafa allir skráðir félagar FIMA, sem greitt hafa árgjöld félagsins. Einn fulltrúi Íþróttabandalags Akraness hefur ennfremur rétt til setu á aðalfundi. Hefur sá fulltrúi tillögurétt og málfrelsi en ekki atkvæðisrétt.
7. gr.
Reikningar félagsins skulu miðast við 31. Desember ár hvert. Reikningarnir skulu endurskoðaðir og liggja frammi ekki síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
8. gr.
Heimilt er stjórn félagsins að vísa hverjum þeim er brýtur gegn lögum félagsins eða gerist sekur um óprúðmannlega framkomu, úr félaginu. Ákvörðun stjórnar skal lögð fyrir næsta aðalfund félagsins til staðfestingar.
9. gr.
Félagið skal vera aðili að Íþróttabandalagi Akraness og koma fram undir nafni þess þar til annað verður ákveðið.
10. gr.
Komi fram tillaga um að leggja félagið niður skal slíkt tekið fyrir á aðalfundi og þarf slík tillaga 2/3 hluta atkvæða til þess að hljóta samþykki. Verði félagið lagt niður, þá skulu eignir þess renna til Íþróttabandalags Akraness. Í.A. skal þó innan 5 ára frá því félagið er lagt niður, reiðubúið að afhenda þeim eignir félagsins, sem vilja endurreisa félagið eða stofna nýtt fimleikafélag.
11. gr.
Lögum þessum má ekki breyta, nema með samþykki aðalfundar og þarf til þess samþykki 2/3 hluta atkvæðisbærra fundarmanna. Tillögur um lagabreytingar skulu liggja frammi skriflega sjö dögum fyrir aðalfund.
12. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Fimleikafélag ÍA hefur unnið að því síðast liðin ár í að stækka iðkendahóp sinn og stefnir að því að vera fimleikafélag fyrir alla.
Við bjóðum upp á ýmis námskeið fyrir breiðan aldurshóp. Sem dæmi má nefna:
Áhugafimleikar fyrir iðkendur 9 ára og eldri (í boði eftir áramót í 3 bekk). Iðkendur sem vilja æfa án keppni en hafa möguleika á að taka þátt í sýningum og öðrum viðburðum. Unnið er eftir fimleikastiga þar sem erfiðleiki fer stigvaxandi eftir getu og aldri. Lögð er áherslu á góðan félagsskap og létt andrúmsloft.
Áhugafimleikar eru frábær leið fyrir þá sem vilja æfa af minni ákefð eða með öðrum íþróttum.
Ungbarnafimleikar fyrir börn 6-15 mánaða Íþróttaskólinn fyrir börn 1-4 ára Fjölskyldu fimleikar fyrir foreldra og börn á sunnudögum Fimleikaþrek fyrir íþróttakrakka sem er frábært fyrir börn sem iðka aðrar íþróttagreinar en fimleika Fullorðinsfimleikar fyrir þá sem langar að prufa sig áfram í fimleikum á fullorðins aldri Bandvefslosun fyrir 60 ára og eldri Fimleika fyrir börn með fatlanir fyrir börn á grunnskólastigi Námskeiðin okkar eru auglýst sérstaklega á heimasíðu félagsins.