Æfingar hafnar í frjálsum íþróttum

Ungmennafélagið Skipaskagi verður með æfingar í frjálsum íþróttum á laugardögum í vetur. Æfingarnar fara fram í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum og kostar ekkert fyrst um sinn. Fyrsta æfing var laugardaginn 8. október 2022 Æfingatímar: 15 ára og yngri: kl. 10:00 – 10:50 16 ára og eldri: kl. 11:00 – 12:00 Allir velkomnir

Samæfing á vegum SamVest  

Sjö héraðssambönd á vesturhluta landsins standa að samstarfi í frjálsum íþróttum undir heitinu SAMVEST og er Ungmennafélagið Skipaskagi (USK) á Akranesi aðili að þesu samstarfi. SAMVEST er með samstarfssamning við FH og verður fyrsta æfing ársins í Kaplakrika – föstudaginn 16. mars 2018 kl. ca. 17.00 – 20.00. Æfingin er fyrir 10 ára (árgangur 2008) og eldri […]

Íþróttamaður Akraness 2012.

Kæru Akurnesingar og nærsveitungar,íþróttamaður Akraness verður valinn á morgun,þrettándanum. Þar á Jófríður Ísdís Skaftadóttir möguleika á titlinum,í glæsilegum hópi íþróttamanna. Mætum öll og styðjum við okkar flottu fyrirmyndir. Íslandi allt !

Unglingalandsmót á Selfossi 2012

Opið er fyrir skráningar á 15 unglingalandsmót UMFÍ sem verður haldið á Selfossi 3-5 ágúst n.k. Glæsileg aðstaða er á Selfossi og m.a. verður tekið í notkun nýtt og glæsilegt tjaldstæði. Keppnissvæðið er í hjarta bæjarins og stutt á milli svæða,tilvalið er að taka hjólið með sér. Keppnisgreinar verða eftirfarandi: Knattspyrna,körfubolti,frjálsar íþróttir,fimleikar,dans,motokross,hestaíþróttir,skák,golf,glíma,íþróttir fatlaðra,taekvondo og starfsíþróttir.

Ný gestabók á Guðfinnuþúfu.

Ungmennafélagið Skipaskagi tekur þátt í verkefninu” Fjölskyldan á fjallið “með UMFÍ. Föstudaginn 22 júní gekk vaskur hópur á Guðfinnuþúfu í góðu veðri og setti nýja gestabók í kassann. USK hvetur sem flesta til að hreyfa sig,ganga sér til heilsubótar og skemmtunar.

Aldrei of seint að byrja að keppa aftur

Helgi Sigurðsson USK sem verður 75 ára í sumar keppti í 100 metra bringusundi á Landsmóti 50+ . Helgi stóð sig vel og hreppti annað sæti í flokki 75-79 ára karla. Helgi sló til með skömmum fyrirvara að keppa,svona til að athuga hvar hann stæði. Hann var að vonum ánægður með silfrið og er strax […]

Keppendur USK standa sig vel á Landsmóti 50+

Landsmót UMFÍ 50+ fór vel af stað í blíðskaparveðri í Mosfellsbænum í morgun. Keppendur frá Skipaskaga kepptu meðal annars í Boccia,og kúluvarpi og stóðu sig vel. Sumir voru að keppa í fyrsta skifti og keppnisgleðin skein úr hverju andliti.

Skráningum á Landsmót 50+ lýkur um helgina !

Skagamenn og nærsveitungar,verið dugleg að skrá ykkur á landsmótið 50+ í Mosfellsbæ sem er helgina 8-10 júní næstkomandi. Lítið er um skráningar í knattspyrnu og væri ekki úr vegi fyrir okkar góðu kempur að draga fram skóna og skella í lið. USK hvetur alla til að vera með í góðum félagsskap og ekki skemmir fyrir […]

Skráning hafin á Landsmót 50+

Helgina 8. – 10. júní verður haldið 2. Landsmót UMFÍ 50 + í Mosfellsbæ. Allir geta tekið þátt í mótinu óháð félagi. Mótið er íþrótta – og heilsuhátíð með fjölbreyttri dagskrá. Ásamt keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum verða frítt á fyrirlestrar, kynningar á íþróttagreinum, hóptímar í m.a. sundleikfimi, Zumba og línudansi. Einnig verður boðið upp […]

Aðalfundur Skipaskaga 2012

Aðalfundur UMF Skipaskaga verður haldinn í Sal ÍA þriðjudaginn 27 mars kl 20:00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Foreldrar,iðkendur og velunnarar hvattir til að mæta.