ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Samæfing á vegum SamVest  

Samæfing á vegum SamVest  

13/03/18

#2D2D33

Sjö héraðssambönd á vesturhluta landsins standa að samstarfi í frjálsum íþróttum undir heitinu SAMVEST og er Ungmennafélagið Skipaskagi (USK) á Akranesi aðili að þesu samstarfi.

SAMVEST er með samstarfssamning við FH og verður fyrsta æfing ársins í Kaplakrika – föstudaginn 16. mars 2018 kl. ca. 17.00 – 20.00.

Æfingin er fyrir 10 ára (árgangur 2008) og eldri á starfssvæði SamVest.  Athugið, að það er ekki skilyrði að þátttakandi sé iðkandi í frjálsum – það er allt í lagi að mæta til að prófa.

Mætið með æfingaföt og innanhússíþróttaskó, gaddaskó þau sem eiga.

Þjálfarar frjálsíþróttadeildar FH sjá um þjálfunina, vonandi ásamt þjálfara af SamVest-svæðinu.

Nesti á æfingunni í boði SamVest.  Eftir æfingu förum við saman og fáum okkur kvöldsnarl.

Æfingin er þátttakendum að kostnaðarlausu, en hver og einn borgar fyrir sig í kvöldmatinn.

Skráið þátttöku hér – og endilega sem allra fyrst. Mætum og gerum þetta að góðri æfingu!!

Athugið að laugardaginn 17. mars fer fram Góumót FH og við hvetjum SamVest-iðkendur til að taka þátt í því. Sjá upplýsingar um Góumótið hér í mótaforritinu ÞÓR, m.a. um aldursflokka, greinar og tímasetningar. Hvert félag/samband sér um skráningu sinna iðkenda.

 

Edit Content
Edit Content
Edit Content