ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Skráning hafin á Landsmót 50+

Skráning hafin á Landsmót 50+

29/05/12

#2D2D33

Helgina 8. – 10. júní verður haldið 2. Landsmót UMFÍ 50 + í Mosfellsbæ. Allir geta tekið þátt í mótinu óháð félagi.

Mótið er íþrótta – og heilsuhátíð með fjölbreyttri dagskrá.
Ásamt keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum verða frítt á fyrirlestrar, kynningar á íþróttagreinum, hóptímar í m.a. sundleikfimi, Zumba og línudansi. Einnig verður boðið upp á heilsufarsmælingar og fræðslu um hollustu og heilbrigðan lífsstíl ásamt fjöldi annarra viðburða. Framkvæmd mótsins verður í höndum Ungmennasambands Kjalarnesþings og Ungmennafélags Íslands í samstarfi við Mosfellsbæ og Heilsuvin.

Keppnisgreinar á mótinu eru: Almenningshlaup, badminton, blak, boccia,bridds, frjálsar hestaíþróttir, hringdansar, knattspyrna, kraftlyftingar, línudans, pútt, ringó, skák, starfsíþróttir, strandblak, sund, sýningar og þríþraut.

Allir á aldrinum 50 ára og eldri geta tekið þátt í keppnisgreinum mótsins hvort sem þeir eru í félagi eða ekki. Þátttakendur greiða eitt mótsgjald og öðlast þar með þátttökurétt í öllum keppnisgreinum. Mótsgjald er 3500 krónur óháð greinafjölda.

Frítt verður á tjaldstæði mótshelgina í Mosfellsbæfellsbæ. Skráning ferfram á heimasíðu mótsins www.landsmotumfi50.is

Edit Content
Edit Content
Edit Content