Nýr bæklingur um þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþróttastarfi

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) vekja athygli á nýútkomnum bæklingi sem hefur það að markmiði að auka þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþróttastarfi. Markhópur efnisins eru foreldrar barna og ungmenna af erlendum uppruna. Í bæklingnum er að finna hagnýtar upplýsingar um starfsemi íþrótta- og ungmennafélaga landsins. Sem […]

Auglýst eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði

Opið er fyrir umsóknir til 1. október 2018, kl. 16:00 Styrkir eru veittir til eftirfarandi verkefna: sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana útbreiðslu- og fræðsluverkefna , sérstök áhersla verður lögð á verkefni sem stuðla að þátttöku barna af erlendum uppruna íþróttarannsókna verkefna samkvæmt 13. […]

Sýnum karakter – Um verkefnið

Hefur þú kynnt þér verkefnið „Sýnum karakter“ ? Verkefnið er á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) um þjálfun sálrænnar og félagslegrar færni barna og ungmenna í íþróttum. Hugmyndafræði þess byggir á að hægt sé að þjálfa og styrkja sálræna og félagslega færni iðkenda. Helsta markmiðið er því að hvetja þjálfara og íþróttafélög til að […]

Ókeypis markþjálfun fyrir iðkendur ÍA

Iðkendum, þjálfurum og starfsmönnum, innan aðildarfélaga ÍA stendur nú til boða að nýta sér markþjálfun. Um er að ræða tímabundið verkefni sem er styrkt af Akraneskaupstað og ÍA. Boðið verður uppá: -Einstaklingssamtöl: sem sniðin eru að hverjum og einum einstaklingi. Unnið er í hverju máli sem markþeginn telur vera mikilvægt að vinna í og markþjálfinn […]

Lýðheilsugöngur á Akranesi

Akraneskaupstaður og Íþróttabandalag Akranes í samstarfi við Ferðafélag Íslands endurtaka leikinn frá síðasta ári og bjóða upp á lýðheilsugöngur alla miðvikudaga í september. Frábærir sjálfboðaliðar leiða göngurnar og verður frítt í sund að loknum göngum fyrir göngugarpa. Göngurnar hefjast alltaf kl. 18:00 og er tilgangur þeirra að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum […]

Erindi um eðli, afleiðingar og viðbrögð við ofbeldi í starfsemi íþróttafélaga

Í kjölfar vinnu okkar við aðgerðaráætlun, viðbragðs- og fræðsluáætlun varðandi ofbeldi, kynferðislega áreitni og kynferðisofbeldi innan íþróttahreyfingarinnar boðum við alla þjálfara, starfsmenn og stjórnarmenn aðildarfélaga á fyrirlestur Hafdísar Ingu um „Ofbeldi í íþróttastarfi“.  Erindi um eðli, afleiðingar og viðbrögð við ofbeldi í starfsemi íþróttafélaga Tími: Mánudagur 24. september kl. 19:30 að Jaðarsbökkum Þjálfarar, starfsmenn og […]

Fyrsta skóflustungan tekin að byggingu nýs fimleikahúss á Akranesi

Þann 27. ágúst sl. fengu Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri, Marella Steinsdóttir formaður Íþróttabandalags Akraness og Guðmundur Claxton formaður Fimleikafélags Akraness þann heiður að taka fyrstu skóflustunguna að nýju fimleikshúsi sem verður sambyggt íþróttahúsinu á Vesturgötu. Viðstödd skóflustunguna voru bæjarfulltrúar og starfsfólk Akraneskaupstaðar, fulltrúar Íþróttabandalagsins, fulltrúar og iðkendur Fimleikafélagsins og forsvarsmenn fyrirtækisins Spennt ehf. sem er […]

Keila í vetur – gleði og gaman

Fimmtudaginn 6. sept. kl.16 ætlum við að hittast í keilunni, sjá földann, deila niður í hópa og finna æfingartíma sem hentar flestum. Við ætlum að hafa gleðina ríkjandi í vetur og hafa gaman að keilunni. Áætlað er að vera með þrjár æfingar fyrir eldri 8.-10. bekk en 1 klst. í senn. Yngri 5.-7. bekkur verður […]

Langar þig að æfa blak í skemmtilegum félagsskap

Í september býður Bresi nýjum iðkendur að prófa blak án endurgjalds. Æfingar hjá Bresa eru haldnar á Jaðarsbökkum mánudagskvöld kl. 19:30-21:00, miðvikudagskvöld frá kl. 19:30 til 21:30 og sunnudaga frá kl.16:00 til 18:00.