Göngum í skólann … og íþróttir
Verkefnið Göngum í skólann (www.iwalktoschool.org) verður sett í þrettánda sinn miðvikudaginn 4. september næstkomandi og lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 2. október. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Um […]
Hvernig hjálpa ég barninu mínu að blómstra í íþróttum?
Þriðjudaginn 27. ágúst verður haldin vinnustofa í Háskólanum í Reykjavík í umsjón Chris Harwood sem er prófessor í íþróttasálfræði við háskólann í Loughborough. Yfirskrift vinnustofunnar er Hvernig hjálpa ég barninu mínu að blómstra í íþróttum? og er ætluð fyrir foreldra barna og unglinga. Umfjöllunarefnið er m.a. hvernig er hægt að hafa jákvæði áhrif á sálfræðilega […]
Búið að opna fyrir umsóknir í Íþróttasjóð
Búið er að opna fyrir umsóknir í Íþróttasjóð, en umsóknarfrestur rennur út þann 1. október. Fyrir hverja? Íþrótta- og ungmennafélög, og fyrir þá sem starfa að útbreiðslu- og fræðsluverkefnum á sviði íþrótta. Einnig þá sem starfa að rannsóknum á sviði íþrótta. Til hvers? Styrkirnir eru ætlaðir íþrótta- og ungmennafélögum á landinu til að bæta aðstöðu […]
Opnað hefur verið fyrir skráningar í Nora (https://ia.felog.is/) í íþróttaskólann.
Opnað hefur verið fyrir skráningu í íþróttaskólann. Íþróttaskólinn verður á laugardögum í vetur og hefst önnin þann 7. september. Íþróttaskólinn er fyrir börn fædd 2015, 2016, 2017 og 2018. Gert er ráð fyrir að börn fædd 2018 séu farin að ganga. Kennarar eru Ingibjörg Harpa Ólafsdóttir og Helena Rúnarsdóttir.
Opnað hefur verið fyrir skráningar í Nora (https://ia.felog.is/) v/fimleikaæfinga.
Opnað hefur verið fyrir skáningar í fimleika fyrir haustönn 2019. Nýjir iðkendur í framhaldshópum 2, 3, 4 og 5 flokk verða að hafa samband við yfirþjálfara á netfangið yfirthjalfari@fima.is. Stundaskrá verður birt í næstu viku.
Framkvæmdastjóri ÍA í viðtali við Sýnum karakter
Fyrsti hlaðvarpsþáttur verkefnisins Sýnum karakter hefur litið dagsins ljós. Sýnum karakter er verkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Ungmennafélags Íslands. Fyrsti viðmælandi hlaðvarps Sýnum karakter er Hildur Karen Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness. Nálgast má hlaðvarp Sýnum karakter hér https://soundcloud.com/synumkarakter/1-hildur-karen-ia-1 Myndir frá heimsókninni má sjá hér að neðan.
Vel heppnuð heimsókn frá Got Agulu knattspyrnuliðinu
Í dag kom til okkar knattspyrnulið drengja frá Got Agulu í Kenía en þeir eru hér til að taka þátt í ReyCup. Þeir fóru á æfingu hjá 4. flokki, kíktu í Guðlaugu og fóru í sund og enduðu svo daginn á því að sjá leik hjá Kára. Sjá má frá æfintýrum hópsins á facebook síðu […]
Myndir fyrir ÍSÍ
Þann 23. júní sl. var Alþjóðlegi Ólympíudagurinn haldinn hátíðlegur um allan heim og er það í sjötugasta sinn sem dagurinn er haldinn. Hann er haldinn í tilefni af stofnun Alþjóðaólympíunefndarinnar 23. júní árið 1894. Þá má segja að Ólympíuleikar til forna hafi verið endurvaktir og færðir til nútímans. Markmiðið með deginum er að hvetja fólk […]
Fjölmennt Kvennahlaup í rjómablíðu
Kvennahlaupið á Höfða í frábæru veðri
ÍA býður íbúum á Höfða að taka þátt í Kvennahlaupinu þeim að kostnaðarlausu. Að venju var góð þátttaka glatt á hjalla hjá þátttakendum og aðstoðarmönnum og í lok hlaups fengu allir viðurkenningu og gjöf í boði ÍA. Hér má sjá nokkrar myndir frá Kvennahlaupinu á höfða