Sértækar aðgerðir vegna tekjutaps íþróttafélaga
Samkvæmt samningi mennta- og menningarráðherra við ÍSÍ er framlag ríkisins 450 milljónir króna til íþróttahreyfingarinnar í fyrsta lið í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að bæta það tjón sem einingar innan hennar urðu fyrir. Verður þeim fjármunum ráðstafað með tveimur mismunandi aðferðum: Í fyrsta lagi almennum aðgerðum sem felast í almennum fjárhagslegum stuðningi sem dreifist á íþróttafélög […]
Að halda góða fundi
Eitt það mikilvægasta í félagsstarfi er þekking á fundarsköpum. Hvenær eiga fundarsköp við og hvenær ekki? Hvert er hlutverk fundarstjóra? Hvernig virka breytingartillaga, frávísunartillaga og tilvísunartillaga á aðaltillögu? Öllu þessu og meiru til er svarað í nýju myndbandi sem Gunnar Jónatansson stjórnendamarkþjálfi gerði fyrir ÍSÍ. Myndbandið er hugsað til að auka þekkingu í íþróttahreyfingunni á […]
Hreyfivika 25. – 31. maí
Á Flórida-Skaganum eru allar vikur að sjálfsögðu hreyfivikur en mánudaginn 25, maí hefst formleg Hreyfivika þar sem boðið verður upp á fjölbreytta viðburði á Akranesi. Skagamenn hefa alltaf verið duglegir að bjóða uppá viðburði í Hreyfiviku og nýta sér þá og hvetjum við alla að athuga hvort þeir finni ekki eitthvað við sitt hæfi. Skoða […]
Aðalfundur FIMA 26. maí
Aðalfundur FIMA verður haldinn þriðjudaginn26.maí klukkan 19.30 í frístundamiðstöðinni Garðavöllum. Hvetjum við foreldra og velunnara félagsins til að mæta. Venjuleg aðalfundarstörf. Meðfylgjandi er ársreikningur félagsins https://docs.google.com/spreadsheets/d/1cey-ZPRg-3bp6mhiy4xulW2Wx5MtKD5K7HCl3xJxT7g/edit?usp=sharing Áhugasamir aðilar sem hafa hug á að starfa í stjórnum félagsins eru vinsamlegast beðnir um að snúa sér til Friðbjargar Sigvaldadóttur, formanns FIMA, netfang: fridbjorg@ia.is eða Sigrúnar Ríkharðsdóttur, framkvæmdastjóra FIMA, […]
Dregið úr takmörkun á íþróttastarfi – þrekaðstaða opnuð
Mánudaginn 25. maí, verður allt að 200 manns heimilt að koma saman í einu rými í stað 50 nú og heimilt verður að opna íþróttamannvirki og líkamsræktarstöðvar með sömu takmörkunum og gilda um sund- og baðstaði. Í minnisblaði sóttvarnalæknis er jafnframt lagt til að engar sérstakar takmarkanir verði á íþróttastarfi en gæta þarf að hámarksfjölda […]
Fjölbreytt námskeið í sumar
Fjölbreytt námskeið verða í boði í sumar fyrir ungmenni á Akranesi. Nánari upplýsingar eru á vefnum skagalif.is https://www.skagalif.is/is/sumar-a-akranesi
76. Ársþing ÍA verður haldið mánudaginn 8. júní nk
76. Ársþing ÍA verður haldið mánudaginn 8. júní nk. kl: 19:30 í Hátíðarsal ÍA að Jaðarsbökkum en ársþinginu var frestað fyrr í vor vegna samkomubanns. Dagskrá þingsins verður samkvæmt lögum. Dagskrá ársþings ÍA er: a) Þingsetning b) Lögð fram kjörbréf fulltrúa c) Kosning þingforseta og ritara d) Kosning þriggja fulltrúa í kjörbréfanefnd og aðrar starfsnefndir […]
Gildistími korta í þrek og sund
Vegna lokunar í Íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum vegna samkomubanns verður hægt að láta framlengja gildistíma korta í þrek og sund frá 20. – 22. maí og frá 24. – 27. maí nk.
ÍSÍ greiðir til íþróttafélaga vegna áhrifa Covid-19
ÍSÍ hefur greitt til íþrótta- og ungmennafélaga tæplega 300 milljónir króna af 450 milljón króna framlagi ríkisins til íþróttahreyfingarinnar vegna áhrifa Covid-19. Úthlutunin byggir á tillögum vinnuhóps sem ÍSÍ skipaði þann 25. mars sl. til að móta tillögur að skiptingu þeirra fjármuna sem renna frá ríkinu til íþróttahreyfingarinnar til að mæta áhrifum Covid-19 og samþykktar […]
Umfjöllun um ÍA á vef ÍSÍ
Skemmtileg frétt um ÍA á vef ÍSÍ þar sem rætt er við framkvæmdastjóra ÍA, fjallað um umhverfisdaginn, ÍATV og nýtt fimleikahús. https://isi.is/frettir/frett/2020/05/14/samstada-hja-ia/