ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Dregið úr takmörkun á íþróttastarfi – þrekaðstaða opnuð

Dregið úr takmörkun á íþróttastarfi – þrekaðstaða opnuð

23/05/20

12550951851387731920Olympic_sports_Weightlifting_pictogram.svg.hi

Mánudaginn 25. maí, verður allt að 200 manns heimilt að koma saman í einu rými í stað 50 nú og heimilt verður að opna íþróttamannvirki og líkamsræktarstöðvar með sömu takmörkunum og gilda um sund- og baðstaði. Í minnisblaði sóttvarnalæknis er jafnframt lagt til að engar sérstakar takmarkanir verði á íþróttastarfi en gæta þarf að hámarksfjölda fullorðinna allt að 200 manns í sama rými.

Hvatt til þess að viðhalda tveggja metra nálægðarmörkum eftir því sem kostur er, eins og nánar er fjallað um í auglýsingu heilbrigðisráðherra

Á líkamsræktarstöðvum verður, líkt og á á sund- og baðstöðum, takmörkun á fjölda gesta sem miðast við að þeir séu aldrei fleiri en nemur helmingi af leyfilegum hámarksfjölda samkvæmt starfsleyfi. Eins og fram kemur í auglýsingunni verða áfram gerðar sömu kröfur um sótthreinsun og þrif almenningsrýma og hingað til og eru iðkendur beðnir að fara eftir tilmælum starfsfólks íþróttamannvirkja.

Edit Content
Edit Content
Edit Content