Að vinna saman er árangur
Kæru félagar Nú berast fregnir af því að við séum um það bil hálfnuð með samkomubannið en á þeim tíma höfum við orðið vitni að ótrúlegri samvinnu, elju og hugmyndaauðgi þjálfara, iðkenda og stjórnenda hjá ÍA. Framundan eru hins vegar vikur sem gætu reynst erfiðar ef spár um hámark sjúkdómsins rætast. Í seinni hálfleik er […]
Tilmæli til íþróttafélaga frá ÍSÍ og UMFÍ varðandi endurgreiðslu æfingagjalda
Í ljósi fordæmalausra aðstæðna af völdum kórónafaraldursins, takmarkana á skólahaldi og samkomubanns sem veldur því að íþróttastarf liggur niðri hafa vaknað spurningar um endurgreiðslu æfingagjalda íþróttafélaga. ÍSÍ og UMFÍ hafa leitað ráðgjafar varðandi endurgreiðslu æfingagjalda. Samkvæmt álitinu eru þessar aðstæður sem nú eru uppi dæmi um ytri atvik sem ekki voru fyrirséð og ekki unnt […]
Gildistími afsláttarkorta framlengdur
Bæjarráð Akraneskaupstaðar hefur samþykkt beiðni ÍA og forstöðumanns íþróttamannvirkja, að framlengja gildistíma þjónustukorta sem gilda í íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar, um þann tíma sem nemur gildistíma samkomubanns stjórnvalda. Sjá frétt á akranes.is
Íþróttamannvirki og þrekaðstaða lokuð
Samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda verða eftirfarandi íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar lokuð frá og með 24. mars nk. · Íþróttahúsið á Jaðarsbökkum · Akraneshöll · Íþróttahúsið við Vesturgötu · Jaðarsbakkalaug · Guðlaug, við Langasand · Bjarnalaug Lokunin varir á meðan samkomubann er í gildi í landinu. Þessi lokun gildir einnig fyrir þrekaðstöðu ÍA.
Íþróttaiðkun trans barna
Út er kominn bæklingur um íþróttaiðkun trans barna, en á síðustu árum hefur þó nokkur fjöldi barna á öllum aldri verið að stíga fram sem trans. Mikilvægt er að huga vel að aðgengi þessa hóps að íþróttastarfi, taka vel á móti þeim og huga vel að þeirra sérstöðu. Bæklingurinn er hugsaður til upplýsinga fyrir foreldra, […]
Allt íþróttastarf fellt niður um óákveðinn tíma
Í dag, 20. mars bárust yfirlýsingar frá heilbrigðisráðuneyti í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneyti og frá ÍSÍ og UMFÍ varðandi íþróttastarfsemi á landinu á meðan á farsótt stendur. Akraneskaupstaður og ÍA vilja að öllu leyti fara að tilmælum þessara aðila og sóttvarnarlæknis og því mun formlegt íþróttastarf á Akranesi falla niður um óákveðinn tíma. Tilkynningu […]
Ísland á iði og klefinn.is
Ísland á iði í 28 daga – 30 mínútur á dag er síða á vegum ÍSÍ þar sem settar verða inn áskoranir á fjölbreytta hreyfingu, fróðleik, myndir, myndbönd og almenna skemmtun sem mun nýtast okkur öllum þær 4 vikur sem samkomubannið er við líði. Það er svo margt sem við getum gert sjálf og mikilvægt […]
Ársþingi ÍA frestað
Ársþingi ÍA sem vera átti fimmtudaginn 2. apríl hefur verið frestað um óákveðinn tíma.
Upplýsingar um íþróttamannvirki í samgöngubanni
Breytingar verða á aðgengi að ýmsum íþróttamannvirkjum á Akranesi á meðan á samkomubanni stendur. Sundlaugar: Sundlaugar verða opnar en þó með þeim takmörkunum að einungis sex einstaklingar geta verið samtímis í búningsklefum og tveir metrar skulu vera milli einstaklinga í sundlauginni/pottum. Sundlaugarklefar verða eingöngu fyrir gesti sundlaugar. Akraneshöll: Akraneshöll verður lokuð almenningi og einungis opinn […]
Góð ráð fyrir íþróttamenn í samkomubanni
Frábær pistill frá Dr. Hafrúnu Kristjánsdóttur fyrir íþróttamenn í samkomubanni Ráð fyrir íþróttamenn