Afmælishátíð ÍA og íþróttahússins við Vesturgötu

Í tilefni af 70 ára afmæli ÍA, Íþróttabandalags Akraness og 40 ára afmælis íþróttahússins við Vesturgötu þá verður blásið til íþróttahátíðar í íþróttahúsinu við Vesturgötu þann 26. nóvember nk. Ýmislegt spennandi verður í boði eins og sést á meðfylgjandi auglýsingu. Upplýsingar um viðburðinn má einnig finna á Facebook síðu hans. https://www.facebook.com/events/211941595913025/

Styrktarsjóður Íslandsbanka og ÍSÍ

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Styrktarsjóð Íslandsbanka og ÍSÍ. Sjóðurinn mun styrkja ungt íþróttafólk á aldrinum 15-20 ára á braut sinni í átt að hámarksárangri. Umsóknarfrestur vegna úthlutunar ársins rennur út föstudaginn 2. desember. Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna hér.

Endurbætur á þrekaðstöðu á Vesturgötunni

Undanfarna daga hefur verið unnið að endurbótum á þrekaðstöðunni í kjallara íþróttahússins við Vesturgötu. Búið er að leggja gúmmímottur á hluta gólfsins, ný handlóð og ketilbjöllur hafa verið keyptar sem og hnébeygjustandur og skábekkir. Þá eru komnar nýjar lyftingastangir og bumper lóð og vonum við hjá ÍA að þessar breytingar falli í góðan jarðveg hjá […]

Kvöldstund í Bjarnalaug

Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, sópransöngkona og Birgir Þórisson, píanóleikari í samstarfi við Samflot ÍA og Akraneskaupstað bjóða bæjarbúum upp á rólega og endurnærandi tónleika við kertaljós í Bjarnalaug miðvikudaginn 2.nóvember kl 20:30. Í boði verður 40 mínútna prógramm með dagskrá úr ýmsum áttum. Má þar nefna dægurlög, íslensk sönglög og söngleikjatónlist. Bæði er hægt að koma […]

Hádegiserindi 21. október – líka á Facebook ÍSÍ

  Föstudaginn 21. október kl.12:00 – 13.00 fer fram hádegisfundur á vegum Sýnum karakter verkefnisins um þjálfun karakters í gegnum íþróttir. Sverre Mansaas Bleie, þaulreyndur yfirþjálfari í handknattleik hjá Randesund, ætlar að miðla af reynslu sinni á fundinum. Sverre, sem hefur meðal annars hlotið útnefninguna Fyrirmyndarþjálfari Noregs, leggur ríka áherslu á andlega og félagslega þætti í […]

Frá unglingi til afreksmanns – hraust sál í heilbrigðum líkama

Íþróttavísindaráðstefnan Frá unglingi til afreksmanns – hraust sál í heilbrigðum líkama, fer fram dagana 13. – 15. október í Laugardalshöll. Þar munu margir af fremstu sérfræðingum Íslands í íþróttavísindum fjalla um uppbyggingu ungs íþróttafólks. Heilbrigðisráð ÍSÍ stendur fyrir ráðstefnunni. Fókusinn verður á ungt íþróttafólk og hvernig hægt er að standa eins vel að uppbyggingu þeirra […]

Sýnum karakter – ráðstefna fyrir þjálfara og foreldra

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) standa saman að ráðstefnunni Sýnum karakter í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 1. október. Ráðstefnan markar upphaf að sameiginlegu verkefni og vefsíðu með sama heiti sem ætluð er þjálfurum og íþróttafélögum. Vefsíðan Sýnum karakter (www.synumkarakter.is) verður opnuð á ráðstefnunni. Á ráðstefnunni mun íþróttafólk og þjálfarar halda erindi um ýmsar hliðar […]

Hauststarfið hafið

Æfingatafla Karateskólinn byrjendur börn Miðvikudögur kl. 15:00—15:50 Kennari: Villi Fimmtudögum kl. 16:00—16:50 Kennari: Eiður og Amalía Framhaldshópur barna Miðvikudögum kl. 15:50 —16:40 Föstudögum kl. 15:00—15:50 Meistaraflokkur barna og fullorðinna Mánudögum kl. 17:00 -18:15 Miðvikudögum 16:40 – 18:00 Föstudögum 15:50—17:00 Kennt er í speglasalnum í kjallara íþróttahúsins á Vesturgötu. Skráning Skráning í Karate er í Nóra […]

Þjálfarastyrkir ÍSÍ

Stjórn Verkefnasjóðs ÍSÍ auglýsir hér með eftir umsóknum um þjálfarastyrki ÍSÍ. Þjálfarastyrkir ÍSÍ eru veittir íþróttaþjálfurum sem sækja sér menntun erlendis í formi námskeiða eða ráðstefna og bæta þekkingu sína í þjálfun, sem mun nýtast íþróttahreyfingunni á Íslandi. Umsóknarfrestur er til 2. október og er upphæð hvers styrkjar 100.000 krónur. Umsóknum skal skila á þar til […]

Haustfjarnám ÍSÍ 2016   

Haustfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 26. sept. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá […]