ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Hádegiserindi 21. október – líka á Facebook ÍSÍ

Hádegiserindi 21. október – líka á Facebook ÍSÍ

20/10/16

#2D2D33

 

Föstudaginn 21. október kl.12:00 – 13.00 fer fram hádegisfundur á vegum Sýnum karakter verkefnisins um þjálfun karakters í gegnum íþróttir. Sverre Mansaas Bleie, þaulreyndur yfirþjálfari í handknattleik hjá Randesund, ætlar að miðla af reynslu sinni á fundinum. Sverre, sem hefur meðal annars hlotið útnefninguna Fyrirmyndarþjálfari Noregs, leggur ríka áherslu á andlega og félagslega þætti í sinni þjálfun og er þekktur fyrir að skapa jákvætt viðhorf til íþróttaiðkunar og virðingu utan sem innan vallar. Erindi Sverre heitir: „It’s through relationship, you make developments“.

Hádegisfundurinn fer fram í sal KSÍ við Laugardalsvöll og er aðgangur ókeypis.

Athugið að það eru engar veitingar í boði (nema kaffi).

Fundurinn verður sýndur í beinni útsendingu á facebook síðu ÍSÍ.

Skráning fer fram hér.

Edit Content
Edit Content
Edit Content