ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Sýnum karakter – ráðstefna fyrir þjálfara og foreldra

Sýnum karakter – ráðstefna fyrir þjálfara og foreldra

22/09/16

#2D2D33

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) standa saman að ráðstefnunni Sýnum karakter í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 1. október. Ráðstefnan markar upphaf að sameiginlegu verkefni og vefsíðu með sama heiti sem ætluð er þjálfurum og íþróttafélögum. Vefsíðan Sýnum karakter (www.synumkarakter.is) verður opnuð á ráðstefnunni.

Á ráðstefnunni mun íþróttafólk og þjálfarar halda erindi um ýmsar hliðar þjálfunar og ræða málið í pallborði. Ráðstefnugestir geta tekið þátt í umræðunum.

Þátttakendur á ráðstefnunni eru m.a.: Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu; Margrét Lára Viðarsdóttir, íþróttafræðingur, B.S. í sálfræði og landsliðskona í knattspyrnu; Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda og félagsmálafræðum við HÍ, Íris Mist Magnúsdóttir, íþróttafræðingur og landsliðsþjálfari í hópfimleikum.

Dagskránna má sjá í heild sinni hér að neðan – en hún gæti breyst

Hvað: Sýnum karakter – Ráðstefna / samstarfsverkefni ÍSÍ og UMFÍ

Hvar: Háskólinn í Reykjavík

Hvenær: Laugardaginn 1. október á milli 10:00-12:30

 

Skráning er hér:

 

Dagskrá ráðstefnunnar:

 10:00 Setning ráðstefnunnar Sýnum karakter

10:10 Dr. Viðar Halldórsson, lektor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Karakter: Hvað, af hverju, hvernig?

10:40 Fimm stutt erindi sem tengjast reynslu fyrirlesara af áhugahvöt, félagsfærni, leiðtogum, sjálfstrausti, einbeitingu og markmiðasetningu.

  • Íris Mist Magnúsdóttir, íþróttafræðingur og landsliðsþjálfari í hópfimleikum.
  • Pálmar Ragnarsson, B.S. í sálfræði og körfuknattleiksþjálfari yngri flokka KR.

11:00 Kaffihlé

  • Svanur Þór Mikaelsson, landsliðmaður í taekwondo.
  • Margrét Lára Viðarsdóttir, íþróttafræðingur, B.S. í sálfræði og landsliðskona í knattspyrnu.
  • Daði Rafnsson, markaðsfræðingur, með UEFA A-gráðu og fyrrum yfirþjálfari yngri flokka Breiðabliks í knattspyrnu.

11:40 Dr.Hafrún Kristjánsdóttir, lektor og sviðsstjóri íþróttasviðs HR. Kynning á áhersluþáttum verkefnisins.

12:00 Pallborðsumræður:

  • Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu.
  • Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda og félagsmálafræðum við HÍ.
  • Viðar Halldórsson.
  • Hafrún Kristjánsdóttir.

Ráðstefnustjóri er Viðar Garðarsson.

Nánari upplýsingar: 
Sabína Steinunn Halldórsdóttir, verkefnastjóri UMFÍ, sabina@umfi.is, 898-2279.
Ragnhildur Skúladóttir, sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ, ragnhildur@isi.is, 863-4767.

Edit Content
Edit Content
Edit Content