Valdís Þóra er íþróttamaður Akraness 2016

Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, var í kvöld kjörinn íþróttamaður Akraness 2016. Þetta er í fimmta sinn sem Valdís Þóra er efst í þessu kjöri en hún varð fjórum sinnum í röð íþróttamaður ársins á Akranesi á árunum 2007-2010. Sundmaðurinn Ágúst Júlíusson varð annar í kjörinu og Einar Örn Guðnason kraftlyftingamaður varð þriðji.  Í […]

Val á Íþróttamanni Akraness

Þann 6. janúar næstkomandi verður tilkynnt um val á Íþróttamanni Akraness árið 2016. Athöfnin fer fram í Íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum að lokinni þrettándabrennu. Búið er að opna fyrir kosningu um val á Íþróttamanni Akraness og er kosningin opin frá 23. desember til og með 3. janúar. Eyðublað og frekari upplýsingar um aðila sem tilnefndir eru, má […]

Jólakveðja frá ÍA

Framkvæmdastjórn Íþróttabandalags Akraness sendir iðkendum og stuðningsmönnum sínar bestu jólakveðjur. Þökkum gott og árangursríkt samstarf á afmælisárinu.

Frábær árangur Valdísar Þóru

Það hefur sjálfsagt ekki farið framhjá neinum að kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni vann sér inn keppnisrétt á LET Evróumótaröðinni í golfi. Frábær árangur hjá þessari miklu afrekskonu. Skagafréttir www.skagafrettir.is hafa skrifað nokkrar fréttir um afrekið og má lesa um það á vef þeirra. Til hamingju Valdís – við erum stolt af þér  

Fjórar í forystu á Akranesi

Á afmælishátíðinni í gær var smellt mynd af fjórum konum sem eru í forystu í íþróttalífi bæjarins og stjórnkerfi. Skagafréttir skrifuðu skemmtilega frétt um myndatökuna Myndina hér að ofan tók Jónas Ottósson.  

ÍA ljóðið vekur athygli

Á vegg í anddyri íþróttahússins við Vesturgötu hefur verið komið upp veggspjöldum með ljóði eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur, sem samið er í tilefni af afmæli ÍA. Ljóðið hefur vakið mikla athygli og er birt hér í heild sinni:   Spyrna knöttum, kljúfa vötn, fljóð og fimir drengir. Lyfta járnum, leiða hross, óttalaus afl sitt reyna.   […]

Mjög vel sótt afmælishátíð ÍA og íþróttahússins við Vesturgötu

Mikill fjöldi fólks lagði leið sína í íþróttahúsið við Vesturgötu í gær þegar ÍA og íþróttahúsið blésu til sameiginlegrar afmælishátíðar þar sem fagnað var 70 ára afmælis íþróttabandalagsins og 40 ára afmælis íþróttahússins. Aðildarfélög ÍA buðu gestum að skoða þá aðstöðu sem þau hafa í húsinu og gáfu öllum kost á að reyna sig í […]