Tryggingamál við íþróttaiðkun

Við höfum tekið saman smá upplýsingar um tryggingamál við íþróttaiðkun, en almennt má segja að hver og einn sé á eigin ábyrgð í sinni íþróttaiðkun. Samkvæmt íslenskum lögum bera þau félög og samtök sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi ekki sjálfkrafa ábyrgð á slysum sem börn verða fyrir í starfinu. Því er mikilvægt að foreldrar […]

Íþróttavika Evrópu 23. – 30. september nk.

Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) verður haldin 23. – 30. september nk. í yfir 30 Evrópulöndum. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur hlotið styrk frá Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ styrkjakerfið til verkefna sem munu tengjast vikunni. Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi […]

ÍA vörur – tilvalin gjöf

Við minnum á að á heimsíðu ÍA, má skoða og kaupa fjölbreyttan ÍA fatnað og ýmsar ÍA stuðningsmannavörur. Tilvalið að nýta sér þetta fyrir næsta afmæli eða bara til að gefa einhverjum sem manni þykir vænt um .  Skoðið endilega á http://ia.is/shop/

Samningar um uppbyggingu á Frístundamiðstöð við Garðavöll undirritaðir.

Golfklúbburinn Leynir og Akraneskaupstaður skrifuðu í gær undir samninga um uppbyggingu á Frístundamiðstöð við Garðavöll. Frístundamiðstöðin verður rúmlega 1000m2 að stærð og skiptist í 700m2 jarðhæð og 300m kjallara. Frístundamiðstöðin mun hýsa félagsstarf Leynis og aðra frístundastarfssemi á vegum Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness. Um þessar mundir eru útboð í gangi og gera áætlanir ráð fyrir […]

Sýnum karakter – vinnufundur

Nú er að verða ár síðan að verkefninu Sýnum karakter var hleypt af stokkunum og af því tilefni er boðað til vinnufundar þriðjudaginn 12. september í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal.  Fundurinn hefst kl.10 og stendur til 12:30. Fyrirkomulag fundarins verður með þeim hætti að þau Óli Þór Júlíusson úr HK og Íris Mist Magnúsdóttir úr […]

Einkaþjálfarar og hóptímar hjá ÍA

Nokkrir sjálfstætt starfandi einkaþjálfarar eru starfandi í þreksölunum og bjóða uppá persónulega þjónustu varðandi heilsurækt. Einnig eru í gangi fjölbreytt flóra af hóptímum. Áhugasömum er bent á að hafa samband við viðeigandi aðila varðandi nánari upplýsingar. Þeir sem kaupa árskort í þrek og sund eiga rétt á 60 mín með leiðbeinanda í þreksalnum. Starfandi einkaþjálfarar sjá um […]

Hvatningastyrkir ÍA afhentir

[et_pb_section admin_label=”section”][et_pb_row admin_label=”row”][et_pb_column type=”4_4″][et_pb_text admin_label=”Text”] Helga Sjöfn Jóhannesdóttir, formaður ÍA, afhenti Sigurfara, Siglingarfélagi Akraness hvatningarstyrk vegna siglingarnámskeiðs sumarið 2017 og dugnað við sjálfboðavinnu.  Það var Guðmundur Benediktsson formaður Sigurfara ásamt Önnu Guðrúnu Ahlbrecht stjórnarmanni í Sigurfara sem veittu styrknum móttöku.  Formður ÍA veitti Hnefaleikafélagi Akraness einnig hvatningarstyrk fyrir sjálfboðavinnu við framkvæmdir á aðstöðu Hnefaleikafélagsins í […]

Boðið að æfa með Mayweather

Skagamanninum og boxaranum Arnóri Má Grímssyni var boðið að æfa með Floyd Mayweather til að aðstoða hann í undirbúningnum fyrir bardagann gegn Conor McGregor. Arnór þurfti að afþakka boðinu en getur vel ímyndað sér að það sé ekki þægilegt að vera sleginn af Floyd.   Nánar á heimasíðu MMA frétta http://mmafrettir.is/arnori-var-bodid-ad-aefa-med-floyd-fyrir-bardagann-gegn-conor/  

Þjálfaramenntun ÍSÍ – Haustfjarnám 2017 – 1. og 2. stig

Haustfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 18. september nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til […]

Unglingalandsmótið er líka fyrir Skagamenn!

Að venju fer Unglingalandsmót UMFÍ fram um verslunarmannahelgina, að þessu sinni á Egilsstöðum.  Mótið hefst föstudaginn 4. ágúst og lýkur um miðnætti sunnudaginn 6. ágúst. Þó er sú undantekning að keppni í golfi fer fram á fimmtudeginum 3. ágúst. Í ár eru 23 mismunandi íþróttagreinar í boði þannig að allir áhugasamir ættu að geta fundið […]