ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Sýnum karakter – vinnufundur

Sýnum karakter – vinnufundur

08/09/17

#2D2D33

Nú er að verða ár síðan að verkefninu Sýnum karakter var hleypt af stokkunum og af því tilefni er boðað til vinnufundar þriðjudaginn 12. september í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal.  Fundurinn hefst kl.10 og stendur til 12:30.

Fyrirkomulag fundarins verður með þeim hætti að þau Óli Þór Júlíusson úr HK og Íris Mist Magnúsdóttir úr Gerplu segja frá því hvernig þeirra félög og þjálfarar hafa nýtt sér verkefnið í starfinu. Að því loknu verður fundarmönnum skipt í umræðuhópa þar sem rætt verður um hvernig íþróttafélög geta unnið með verkefnið og hvernig ÍSÍ og UMFÍ geta stutt betur með hugmyndavinnu félaganna. Það skiptir ÍSÍ og UMFÍ miklu máli að verkefnið lifi áfram og það nýtist íþróttafélögum sem best og bindum við miklar vonir um að vinnan í hópunum geti hjálpað okkur til að gera gott verkefni enn betra.

Skráning fer fram hér http://isi.is/fraedsla/hadegisfundir/skraning/. Fyrirlestrar þeirra Óla Þórs og Írisar Mistar verða teknir upp og sýndir á facebook síðu Sýnum karakter. 

 

Edit Content
Edit Content
Edit Content